Nottingham Forest og Crystal Palace voru að ljúka leikjum sínum í 16-liða úrslitum Evrópudeildarinnar og Sambandsdeildarinnar.
Nottingham heimsótti FC Midtjylland til Danmerkur eftir að hafa tapað heimaleiknum óvænt í síðustu viku. Elías Rafn Ólafsson átti góðan leik í Nottingham og var aftur í stuði í dag, en tókst ekki að koma í veg fyrir tvö mörk í venjulegum leiktíma.
Heimamenn skoruðu eitt mark svo leikurinn fór í framlengingu. Forest var með yfirburði í fyrri hálfleik en seinni hálfleikurinn og framlengingin voru nokkuð jöfn. Hvorugu liði tókst að bæta marki við leikinn svo þurfti vítaspyrnukeppni til að skera úr um sigurvegara.
Í vítakeppninni var Elías Rafn nálægt því að verja fyrstu spyrnu Morgan Gibbs-White og skutlaði sér aftur í rétt horn en var þó ekki nálægt því að verja næstu spyrnu frá Ibrahim Sangaré. Heimamenn í Midtjylland skutu á sama tíma tvisvar sinnum í stöngina.
Forest var því komið með tveggja marka forystu og skoraði Neco Williams örugglega úr þriðju spyrnunni. Þá var röðin komin að Edward Chilufya í liði heimamanna en hann rann þegar komið var að stóru stundinni og skóflaði boltanum hátt yfir. Forest vann vítakeppnina því 0-3.
19.03.2026 19:43
Evrópudeildin: Lyon úr leik - Framlengt í Danmörku
Á sama tíma gerði Crystal Palace 1-1 jafntefli við AEK Larnaca þrátt fyrir að hafa sýnt yfirburði er liðin mættust í Kýpur. Palace-menn voru óheppnir að skora ekki í markalausu jafntefli í fyrri leiknum á heimavelli og þurftu þeir framlengingu til að ganga frá AEK í dag.
Ismaila Sarr skoraði fyrsta mark leiksins og kom boltanum aftur í netið skömmu síðar en rangstaða dæmd.
Heimamenn í Larnaca jöfnuðu metin í seinni hálfleik og misstu svo markaskorarann sinn af velli með rautt spjald. Ellefu leikmönnum Palace tókst ekki að finna sigurmark í venjulegum leiktíma en yfirburðirnir héldu áfram í framlengingu.
Þar var Sarr aftur á ferðinni og innsiglaði sigur Palace á 99. mínútu eftir stoðsendingu frá Daichi Kamada.
19.03.2026 19:50
Sambandsdeildin: Albert lagði upp - Palace í framlengingu
Midtjylland 1 - 2 Nott. Forest (2-2 samanlagt)
0-1 Nicolas Dominguez ('40 )
0-2 Ryan Yates ('52 )
1-2 Martin Erlic ('69 )
0-3 í vítaspyrnukeppni
AEK Larnaca 1 - 2 Crystal Palace (1-2 samanlagt)
0-1 Ismaila Sarr ('13 )
1-1 Enric Saborit ('63 )
1-2 Ismaila Sarr ('99 )
Rautt spjald: Enric Saborit, AEK Larnaca ('73)
Rautt spjald: Petros Ioannou, AEK Larnaca ('120)
Athugasemdir




