Börsungar vilja Rashford aftur á láni - Ndidi gæti farið til Man Utd - Hár verðmiði á Tonali
banner
   fim 19. mars 2026 19:20
Ívan Guðjón Baldursson
Byrjunarlið kvöldsins: Hákon bekkjaður - Þrír Íslendingar byrja
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Það er nóg um að vera í evrópska boltanum í kvöld þar sem keppt er í 16-liða úrslitum Evrópudeildarinnar og Sambandsdeildarinnar.

Hér fyrir neðan má sjá byrjunarliðin úr helstu leikjum kvöldsins. Hákon Arnar Haraldsson er tekinn úr byrjunarliðinu hjá Lille eftir slaka frammistöðu í fyrri leiknum á heimavelli gegn Aston Villa.

Lille þarf á sigri að halda á útivelli og leiðir Olivier Giroud sóknarlínuna á Villa Park. Unai Emery þjálfari Villa gerir fjórar breytingar frá fyrri leiknum. Tammy Abraham, John McGinn, Victor Lindelöf og Ian Maatsen koma inn í byrjunarliðið.

Roma og Bologna eigast svo við í ítölskum slag og mæta bæði lið til leiks með sterk byrjunarlið. Stephan El Shaarawy fær tækifærið í sóknarlínu Rómverja og er Federico Bernardeschi í byrjunarliðinu hjá Bologna.

Porto spilar svo við Stuttgart í spennandi slag eftir að Portúgalirnir unnu fyrri leikinn í Þýskalandi áður en Real Betis fær Panathinaikos í heimsókn.

Panathinaikos vann 1-0 í Grikklandi og átti Sverrir Ingi Ingason stórleik. Hann er aftur á sínum stað í hjarta varnarinnar og þarf að hafa gætur á mönnum á borð við Antony og Cucho Hernández í sóknarlínunni.

Þessir leikir fara fram í Evrópudeildinni en í Sambandsdeildinni eru
Logi Tómasson og Gísli Gottskálk Þórðarson í byrjunarliðunum hjá Samsunspor og Lech Poznan.

Samsunspor heimsækir Rayo Vallecano til Spánar á meðan Lech Poznan spilar við úkraínska Shakhtar Donetsk á 'heimavelli' Shakhtar í Póllandi.

Íslendingaliðin eru bæði 3-1 undir fyrir útileikina.

Evrópudeildin
Aston Villa: Martinez, Bogarde, Lindelöf, Torres, Maatsen, Onana, D.Luiz, Rogers, McGinn, Sancho, Abraham

Lille: Özer, Meunier, Mbemba, Alexsandro, Ngoy, Perraud, Bentaleb, Bouaddi, Mukau, Correia, Giroud



Roma: Svilar, Mancini, Ndicka, Hermoso, Wesley, Celik, Kone, Cristante, Pisilli, El Shaarawy, Maalen

Bologna: Ravaglia, Zortea, Vitik, Lucumi, Joao Mario, Freuler, Pobega, Ferguson, Bernardeschi, Rowe, Castro



Porto: D.Costa, A.Costa, T.Silva, Bednarek, Zaidu, Fofana, Rosario, Mora, W.Gomes, Sainz, Moffi

Stuttgart: Nubel, Jaquez, Chabot, Hendriks, Mittelstadt, Karazor, Stiller, Undav, El Khannouss, Fuhrich, Demirovic



Real Betis: Lopez, Bellerin, Bartra, Natan, Rodriguez, Amrabat, Fornals, Ezzalzouli, Antony, Hernandez, Ruibal

Panathinaikos: Lafont, Calabria, Katris, Ingason, Hernandez, Kyriakopoulos, Bakasetas, Sanches, Pellistri, Taborda, Tetteh



Sambandsdeildin
Samsunspor: Kocuk, Mendes, Cift, Satka, Van Drongeien, Tómasson, Yuksel, Holse, Makoumbou, Ndiaye, Marius



Lech Poznan: Mrozek, Gumny, Monka, Milic, Kozubal, Þórðarson, Palma, Moutinho, Ismaheel, Rodriguez, Ishak
Athugasemdir
banner
banner
banner