Enrique efstur á lista Man Utd - Hættir Pep hjá City í sumar? - Man Utd ætlar ekki að lána Rashford aftur til Barca
   fös 20. mars 2026 13:15
Ívan Guðjón Baldursson
„Sancho var langbesti maður vallarins"
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Mynd: Sky Sports
Mynd: EPA
John McGinn fyrirliði Aston Villa átti góðan leik og skoraði fyrra markið í 2-0 sigri gegn Lille í 16-liða úrslitum Evrópudeildarinnar í gærkvöldi.

Jadon Sancho lagði upp fyrir McGinn og innsiglaði sigurinn sjálfur með marki á lokakaflanum. Villa mætir Bologna í 8-liða úrslitum.

„Þetta var mjög rólegur fyrri hálfleikur og við vorum heldur ekkert sérstakir í seinni hálfleik, en það sem skiptir máli er að við erum komnir í 8-liða úrslitin," sagði McGinn eftir lokaflautið, áður en hann hrósaði liðsfélögunum Emiliano Martínez og Sancho.

„Þetta var stórkostleg sending frá Emi í fyrra markinu en þetta sýnir líka hversu gæðamikill Jadon er. Þetta var hans besta frammistaða með Villa, hann var langbesti leikmaður vallarins í kvöld. Emi er magnaður markvörður og sýndi það enn eina ferðina í þessum leik."

Þetta var annar byrjunarliðsleikur McGinn eftir tveggja mánaða fjarveru vegna meiðsla. Villa lenti í miklum erfiðleikum á þessum kafla tímabilsins.

„Það var erfitt að vera fastur í sjúkraþjálfun þegar liðinu gekk ekki nógu vel. Ég var heppinn að meiðslin voru ekki verri en raun ber vitni, ég vildi klára endurhæfinguna almennilega áður en ég mætti aftur á völlinn. Í fortíðinni hef ég reynt að stytta mér leið í endurhæfingu og það reyndust mistök. Ég ákvað að gera ekki sömu mistök aftur.

„Ég hef aldrei sett mér markmið um að skora ákveðið mörg mörk á tímabili en þjálfarinn gefur öllum framherjunum sérsniðin markmið. Ég ætla að reyna að skora 10 mörk á hverju tímabili. Það er eitthvað sem mér hefur aldrei tekist hingað til, en vonandi tekst mér það í ár. Það er undir okkur kantmönnum komið að taka pressuna af Ollie (Watkins)."


McGinn skoraði 9 mörk í 53 leikjum á sínu markamesta tímabili með Villa 2023-24, en hann er kominn með 6 mörk í 32 leikjum á yfirstandandi tímabili. Hann er því aðeins fjórum mörkum frá því að bæta sitt eigið markamet og er nóg eftir af tímabilinu, bæði í ensku úrvalsdeildinni og Evrópudeildinni."

Jadon Sancho tjáði sig einnig að leikslokum, en þetta er annað markið sem hann skorar fyrir Aston Villa á tímabilinu og þriðja stoðsendingin sem hann gefur. Emery býst við meiru frá leikmanninum.

„Þetta er frábær tilfinning á stórkostlegu kvöldi. Við fylgdum leikplaninu eftir og gerðum það sem við þurftum að gera til að komast áfram í næstu umferð. Vonandi nýtum við þennan meðbyr í úrsvalsdeildinni.

„Við höfum saknað John mjög mikið síðustu mánuði, hann kemur með mikla orku inn í klefann. Ég er mjög ánægður að hann sé kominn aftur í liðið og það var ánægjulegt að leggja upp fyrir hann.

„Við verðum að hugsa um einn leik í einu. Evrópudeildin er erfið keppni en ef við höldum áfram að spila svona þá er ég viss um að við getum komist langt."


   08.02.2026 11:00
Emery varar Sancho við - „Býst við meiru frá honum"

Athugasemdir
banner
banner