Börsungar vilja Rashford aftur á láni - Ndidi gæti farið til Man Utd - Hár verðmiði á Tonali
   fös 20. mars 2026 05:55
Ívan Guðjón Baldursson
Þýskaland um helgina - Meistaradeildarslagur í kvöld
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Þýska helgin hefst á stórleik í dag þegar RB Leipzig spilar við Hoffenheim í meistaradeildarbaráttunni.

Þrjú stig skilja að á milli liðanna í þriðja og fimmta sæti deildarinnar, en efstu fjögur sætin gefa þátttökurétt í Meistaradeildina á næstu leiktíð.

Á morgun á topplið FC Bayern heimaleik við Union Berlin á meðan Ísak Bergmann Jóhannesson og félagar í Köln taka á móti Borussia Mönchengladbach í mikilvægum fallbaráttuslag.

Bayern er með níu stiga forystu þegar átta umferðir eru eftir en þrjú stig skilja að á milli Köln og Gladbach í fallbaráttunni. Köln er einu stigi fyrir ofan fallsvæðið, með 25 stig eftir 26 umferðir.

Bayer Leverkusen heimsækir þá Heidenheim og Borussia Dortmund spilar við Hamburger SV.

Að lokum eru þrír leikir á dagskrá á sunnudaginnn þar sem Eintracht Frankfurt, Freiburg og Stuttgart eiga útileiki.

Föstudagur
19:30 RB Leipzig - Hoffenheim

Laugardagur
14:30 Heidenheim - Leverkusen
14:30 Bayern - Union Berlin
14:30 Köln - Gladbach
14:30 Wolfsburg - Werder Bremen
17:30 Dortmund - Hamburger

Sunnudagur
14:30 Mainz - Frankfurt
16:30 St. Pauli - Freiburg
18:30 Augsburg - Stuttgart
Stöðutaflan Þýskaland Bundesliga - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Bayern 26 21 4 1 93 25 +68 67
2 Dortmund 26 17 7 2 55 26 +29 58
3 Hoffenheim 26 15 5 6 54 34 +20 50
4 Stuttgart 26 15 5 6 51 34 +17 50
5 RB Leipzig 26 14 5 7 48 35 +13 47
6 Leverkusen 26 13 6 7 49 33 +16 45
7 Frankfurt 26 10 8 8 49 49 0 38
8 Freiburg 26 9 7 10 37 43 -6 34
9 Union Berlin 26 8 7 11 31 42 -11 31
10 Augsburg 26 9 4 13 31 45 -14 31
11 Hamburger 26 7 9 10 29 37 -8 30
12 Gladbach 26 7 7 12 30 43 -13 28
13 Mainz 26 6 9 11 31 41 -10 27
14 Köln 26 6 7 13 35 44 -9 25
15 Werder 26 6 7 13 29 47 -18 25
16 St. Pauli 26 6 6 14 23 42 -19 24
17 Wolfsburg 26 5 6 15 35 56 -21 21
18 Heidenheim 26 3 5 18 24 58 -34 14
Athugasemdir
banner
banner