Noa Lang, leikmaður Galatasaray, greinir frá því á samfélagsmiðlum að aðgerðin sem hann fór í á þumalfingri hafi lukkast vel.
Hann slasaðist þegar hann lenti á auglýsingaskilti á Anfield eftir að Liverpool vann 4-0 sigur gegn tyrkneska liðinu á miðvikudaginn.
Hann slasaðist þegar hann lenti á auglýsingaskilti á Anfield eftir að Liverpool vann 4-0 sigur gegn tyrkneska liðinu á miðvikudaginn.
Lang var á fleygiferð og missti jafnvægið en setti hendina á auglýsingaskiltið til að rétta sig við en þá meiddist hann illa og var alveg sárþjáður. Þumalfingurinn var illa farinn, það blæddi duglega og hollenski leikmaðurinn fékk súrefni þegar hann fór af velli á börum.
„Aðgerðin heppnaðist vel. Takk fyrir öll skilaboðin,“ skrifaði Lang á Instagram.
Galatasaray hefur hótað málsókn og málið verður rannsakað af UEFA en talið er að ekki hafi verið búið að auglýsingaskiltinu samkvæmt öryggiskröfum.
???? A fan-captured video of Noa Lang’s injury has emerged.pic.twitter.com/kePgHn9pam
— Universal News (@universalnewsx) March 19, 2026
Athugasemdir
