Enrique efstur á lista Man Utd - Hættir Pep hjá City í sumar? - Man Utd ætlar ekki að lána Rashford aftur til Barca
   lau 21. mars 2026 07:30
Ívan Guðjón Baldursson
Einkunnir Bournemouth og Man Utd: Maguire skúrkurinn
Alex Scott maður leiksins
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Sky Sports gaf leikmönnum einkunnir eftir 2-2 jafntefli Bournemouth gegn Manchester United í eina leik gærkvöldsins í ensku úrvalsdeildinni.

Man Utd náði forystunni í tvígang en í bæði skiptin tókst Bournemouth að jafna metin. Alex Scott er valinn sem maður leiksins og er hann einn af þremur sem fá 8 í einkunn.

Scott stóð sig vel á miðjunni hjá Bournemouth ásamt Ryan Christie sem skoraði mark og fær einnig 8 fyrir sinn þátt. Junior Eli Kroupi, sem kom inn af bekknum og skoraði úr vítaspyrnu, fær líka 8.

Í liði United er Harry Maguire skúrkurinn með 4 í einkunn. Hann braut af sér innan vítateigs á lokakafla leiksins og dæmdi Stuart Attwell dómari vítaspyrnu og rautt spjald fyrir að ræna upplögðu tækifæri af Evanilson.

Casemiro fær 5 í einkunn en aðrir leikmenn Rauðu djöflanna fá ýmist 6 eða 7 fyrir sinn þátt.

Bournemouth: Petrovic (7), Jimenez (5), Hill (6), Senesi (6), Truffert (7), Scott (8), Christie (8), Rayan (6), Tavernier (6), Adli (6), Evanilson (7).
Varamenn: Brooks (6), Smith (6), Kroupi (8)

Man Utd: Lammens (7), Dalot (7), Yoro (6), Maguire (4), Shaw (6), Casemiro (5), Mainoo (7), Amad (6), Fernandes (7), Cunha (7), Mbeumo (6).
Varamenn: Sesko (6), Heaven (6), Ugarte (6)
Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 31 21 7 3 61 22 +39 70
2 Man City 30 18 7 5 60 28 +32 61
3 Man Utd 31 15 10 6 56 43 +13 55
4 Aston Villa 30 15 6 9 40 37 +3 51
5 Liverpool 30 14 7 9 49 40 +9 49
6 Chelsea 30 13 9 8 53 35 +18 48
7 Brentford 30 13 6 11 46 42 +4 45
8 Everton 30 12 7 11 34 35 -1 43
9 Newcastle 30 12 6 12 43 43 0 42
10 Bournemouth 31 9 15 7 46 48 -2 42
11 Fulham 30 12 5 13 40 43 -3 41
12 Brighton 30 10 10 10 39 36 +3 40
13 Sunderland 30 10 10 10 30 35 -5 40
14 Crystal Palace 30 10 9 11 33 35 -2 39
15 Leeds 30 7 11 12 37 48 -11 32
16 Tottenham 30 7 9 14 40 47 -7 30
17 Nott. Forest 30 7 8 15 28 43 -15 29
18 West Ham 30 7 8 15 36 55 -19 29
19 Burnley 30 4 8 18 32 58 -26 20
20 Wolves 31 3 8 20 24 54 -30 17
Athugasemdir
banner
banner