Andoni Iraola þjálfari Bournemouth svaraði spurningum eftir dramatískt jafntefli gegn Manchester United er liðin mættust í ensku úrvalsdeildinni fyrr í kvöld.
Gestirnir frá Manchester náðu forystunni í tvígang en í bæði skiptin tókst Bournemouth að jafna til að bjarga stigi. Lærlingar Iraola enduðu leikinn manni fleiri en tókst ekki að nýta liðsmuninn til að stela sigri á lokakaflanum.
„Við vildum þrjú stig í dag og spiluðum vel en þetta var mjög erfiður leikur. United voru hættulegir í hvert skipti sem þeir komust í sókn og úr varð spennandi leikur. Við spiluðum mjög vel og komumst næst því að sigra leikinn á lokakaflanum þegar við vorum leikmanni fleiri," sagði Iraola að leikslokum áður en hann var spurður út í afar umdeilt atvik.
Amad Diallo féll innan vítateigs eftir samskipti við Adrien Truffert varnarmann Bournemouth en Stuart Attwell dómari leyfði leiknum að halda áfram. Heimamenn geystust í sókn og kláruðu með marki. Michael Carrick þjálfari Man Utd var gríðarlega ósáttur með dómgæsluna í ljósi þess að Bournemouth fékk dæmda vítaspyrnu fyrir svipað atvik seinna í leiknum og fékk Harry Maguire rautt spjald að launum.
20.03.2026 23:03
Sjáðu atvikið: Átti Amad að fá vítaspyrnu?
„Ég er búinn að sjá þetta aftur og mér fannst þetta aldrei vera vítaspyrna þegar Amad féll til jarðar. Hinar tvær vítaspyrnurnar eru hins vegar réttar útaf því að í báðum tilfellum tapa varnarmennirnir stöðu og brjóta svo af sér.
„Strákarnir vildu fá vítaspyrnu í fyrri hálfleik þegar boltinn fór í handlegginn á Maguire en mér fannst það ekki vera víti, hann var með báðar hendur fyrir aftan bak. Að mínu viti var þetta mjög vel dæmt."
Bournemouth er um miðja úrvalsdeild með 42 stig eftir 31 umferð. Jafnteflið gegn United er fimmta jafntefli liðsins í röð.
„Jafntefli gegn United eru góð úrslit, en við erum komnir með 15 jafntefli á tímabilinu sem er alltof mikið. Við áttum oft skilið að vinna þessa jafnteflisleiki en tókst ekki. Núna erum við búnir að jafna taplausa metið okkar í úrvalsdeildinni sem verður mjög erfitt að bæta útaf því að við eigum næst útileik gegn Arsenal."
Bournemouth er búið að fara í gegnum ellefu úrvalsdeildarleiki í röð án taps og eru lærlingar Iraola aðeins einum leik frá því að bæta félagsmet í deildinni. Tólfti leikurinn er þó á útivelli gegn toppliði Arsenal og gæti reynst erfitt að snúa heim frá Emirates með stig.
Iraola var að lokum spurður út í orðróma frá Spáni sem segja hann vera efstan á óskalista Athletic Bilbao sem er í þjálfaraleit.
„Þetta tengist mér ekki neitt. Ég held með Athletic útaf því að þetta er félagið mitt en ég er ekki að spá í þessum orðrómum. Mér líður mjög vel þar sem ég er og á í góðu sambandi við stjórnendur."
Iraola er 43 ára gamall og verður samningslaus í sumar.
20.03.2026 23:18
Carrick fokillur: Dómarinn gaf þeim jöfnunarmarkið
Stöðutaflan
England
Premier league - karlar
| L | U | J | T | ms: | mf: | mun | Stig | ||
|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
| 1 | Arsenal | 31 | 21 | 7 | 3 | 61 | 22 | +39 | 70 |
| 2 | Man City | 30 | 18 | 7 | 5 | 60 | 28 | +32 | 61 |
| 3 | Man Utd | 31 | 15 | 10 | 6 | 56 | 43 | +13 | 55 |
| 4 | Aston Villa | 30 | 15 | 6 | 9 | 40 | 37 | +3 | 51 |
| 5 | Liverpool | 30 | 14 | 7 | 9 | 49 | 40 | +9 | 49 |
| 6 | Chelsea | 30 | 13 | 9 | 8 | 53 | 35 | +18 | 48 |
| 7 | Brentford | 30 | 13 | 6 | 11 | 46 | 42 | +4 | 45 |
| 8 | Everton | 30 | 12 | 7 | 11 | 34 | 35 | -1 | 43 |
| 9 | Newcastle | 30 | 12 | 6 | 12 | 43 | 43 | 0 | 42 |
| 10 | Bournemouth | 31 | 9 | 15 | 7 | 46 | 48 | -2 | 42 |
| 11 | Fulham | 30 | 12 | 5 | 13 | 40 | 43 | -3 | 41 |
| 12 | Brighton | 30 | 10 | 10 | 10 | 39 | 36 | +3 | 40 |
| 13 | Sunderland | 30 | 10 | 10 | 10 | 30 | 35 | -5 | 40 |
| 14 | Crystal Palace | 30 | 10 | 9 | 11 | 33 | 35 | -2 | 39 |
| 15 | Leeds | 30 | 7 | 11 | 12 | 37 | 48 | -11 | 32 |
| 16 | Tottenham | 30 | 7 | 9 | 14 | 40 | 47 | -7 | 30 |
| 17 | Nott. Forest | 30 | 7 | 8 | 15 | 28 | 43 | -15 | 29 |
| 18 | West Ham | 30 | 7 | 8 | 15 | 36 | 55 | -19 | 29 |
| 19 | Burnley | 30 | 4 | 8 | 18 | 32 | 58 | -26 | 20 |
| 20 | Wolves | 31 | 3 | 8 | 20 | 24 | 54 | -30 | 17 |
Athugasemdir





