Enrique efstur á lista Man Utd - Hættir Pep hjá City í sumar? - Man Utd ætlar ekki að lána Rashford aftur til Barca
   fös 20. mars 2026 21:47
Ívan Guðjón Baldursson
Ítalía: Mikael lék allan leikinn í tapi á heimavelli
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Genoa 0 - 2 Udinese
0-1 Jurgen Ekkelenkamp ('66 )
0-2 Keinan Davis ('96)

Mikael Egill Ellertsson var á sínum stað í byrjunarliði Genoa sem tók á móti Udinese í seinni leik kvöldsins í efstu deild ítalska boltans.

Genoa var sterkari aðilinn í fyrri hálfleik og skapaði mikið af hættulegum stöðum en tókst ekki að klára með marki.

Seinni hálfleikurinn var jafnari og nýttu gestirnir frá Údíne færin sín, á meðan heimamenn héldu áfram að klúðra.

Jurgen Ekkelenkamp náði forystunni með skallamarki á 66. mínútu eftir frábæra fyrirgjöf frá Nicoló Zaniolo.

Genoa leitaði að jöfnunarmarki og lagði allt í sóknarleikinn í uppbótartímanum, en fékk mark í bakið frá Keinan Davis.

Lokatölur urðu því 0-2 og eru núna sex stig á milli liðanna um miðja deild. Mikael og félagar eiga 33 stig eftir 30 umferðir og eru níu stigum frá fallsæti.


Smelltu hér til að kaupa áskrift að Livey

Athugasemdir
banner
banner