Logi Tómasson og Gísli Gottskálk Þórðarson voru í byrjunarliðum Samsunspor og Lech Poznan sem unnu á útivelli í 16-liða úrslitum Sambandsdeildarinnar í kvöld.
Bæði lið eru þó úr leik eftir að hafa tapað fyrri leikjunum á heimavelli.
Logi lék allan leikinn í vinstri vængbakvarðarstöðunni hjá Samsunspor sem vann 0-1 gegn Rayo Vallecano. Heimamenn á Spáni voru sterkari aðilinn en tókst ekki að skora.
Samsunspor er úr leik þrátt fyrir sigurinn eftir að hafa tapað 1-3 á heimavelli í síðustu viku.
Sömu sögu er hægt að segja af Gísla og félögum. Gísli spilaði 83 mínútur í sigri gegn Shakhtar Donetsk.
Lech Poznan komst í tveggja marka forystu sem hefði nægt til að knýja leikinn í framlengingu, en fékk svo mark á sig í seinni hálfleik og datt úr leik.
Í öðrum leikjum kvöldsins vann AZ Alkmaar stórsigur gegn Sparta Prag á meðan Strasbourg náði aðeins jafntefli gegn Rijeka frá Króatíu en komst samt áfram eftir sigur í fyrri leiknum.
Troy Parrott átti mark og stoðsendingu í sigri AZ á meðan Valentín Barco skoraði jöfnunarmark Strasbourg.
Rayo Vallecano 0 - 1 Samsunspor (3-2 samanlagt)
0-1 Cherif Ndiaye ('65 )
Shakhtar Donetsk 1 - 2 Lech Poznan (4-3 samanlagt)
0-1 Mikael Ishak ('13 )
0-2 Mikael Ishak ('45+7, víti)
1-2 Joao Moutinho ('67 , sjálfsmark)
Sparta Prag 0 - 4 AZ Alkmaar (1-6 samanlagt)
0-1 Isak Jensen ('8 )
0-2 Troy Parrott ('58 )
0-3 Sven Mijnans ('62 )
0-4 Ro-Zangelo Daal ('73 )
Strasbourg 1 - 1 Rijeka (3-2 samanlagt)
0-1 Toni Fruk ('21 )
1-1 Valentin Barco ('71 )
Athugasemdir

