Brasilíski varnarmaðurinn Eder Militao hefur verið frá keppni vegna meiðsla í rúma þrjá mánuði en er byrjaður að æfa aftur með leikmannahópi Real Madrid.
Það styttist því í endurkomu hans á völlinn en Madrídingar hafa saknað hans sárlega á tímabilinu. Meiðslavandræði hafa herjað á liðið og þá sérstaklega varnarlínuna.
Militao er 28 ára miðvörður sem var lykilmaður í varnarlínu Madrídinga fyrir nokkrum árum en hefur verið að glíma við erfið meiðslavandræði undanfarin tímabil.
Hann vonast til að vera kominn yfir versta kaflann og gæti reynst afar öflugur liðsstyrkur fyrir lokahnykk tímabilsins.
Militao, sem er með 38 landsleiki að baki fyrir Brasilíu, hefur í heildina spilað 189 leiki á sjö árum í Madríd. Búist er við að hann verði klár í slaginn eftir komandi landsleikjahlé.
01.03.2026 07:00
Meiðsli herja á Real Madrid - Aðeins tveir miðverðir leikfærir
Athugasemdir




