Delap, Mainoo, Bastoni, Atubolu, Vicario, Dewsbury-Hall, Guimaraes og fleiri góðir í slúðri dagsins
   lau 21. mars 2026 11:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Leitar HK inn á við?
Kvenaboltinn
HK fagnar marki á síðasta tímabili.
HK fagnar marki á síðasta tímabili.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
HK var hársbreidd frá því að komast upp í Bestu deildina síðasta sumar.
HK var hársbreidd frá því að komast upp í Bestu deildina síðasta sumar.
Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson
HK er í leit að nýjum þjálfara fyrir kvennalið sitt eftir að komist var að samkomulagi við Pétur Rögnvaldsson um starfslok fyrr í þessari viku. Pétur braut siðareglur félagsins.

Þetta er erfiður tímapunktur að ráðast í þjálfarabreytingar þar sem rúmur mánuður er í að Íslandsmótið hefjist.

Það eru ekki mjög margir þjálfarar í leit að vinnu og því spurning hvort HK leiti inn á við í þjálfaraleitinni. Innan félagsins eru þónokkrir þjálfarar sem eru með reynslu af því að þjálfa meistaraflokk kvenna.

Andri Hjörvar Albertsson, fyrrum þjálfari Þórs/KA, er að þjálfa 2. flokk kvenna og Ívar Ingimarsson, fyrrum þjálfari KR, er að þjálfa 2. flokk karla.

Magnús Haukur Harðarson þjálfar 3. flokk kvenna en hann þjálfaði þar áður meistaraflokk kvenna hjá Fjölni og gæti komið til greina í starfið. Þorleifur Óskarsson, fyrrum þjálfari ÍR, er þá þjálfari 3. flokks karla.

Það eru því svo sannarlega möguleikar innan félagsins hjá HK. Dusan Ivkovic, fyrrum aðstoðarþjálfari Hauka og Ægis, er einnig orðaður við starfið.

HK spilar í Lengjudeild kvenna og var hársbreidd frá því að komast upp í Bestu deildina síðasta sumar. Þetta er því áhugavert starf.
Athugasemdir
banner
banner