Börsungar vilja Rashford aftur á láni - Ndidi gæti farið til Man Utd - Hár verðmiði á Tonali
   fim 19. mars 2026 15:55
Elvar Geir Magnússon
Rosenior fann lekann og átti gott spjall við Enzo
Liam Rosenior, stjóri Chelsea.
Liam Rosenior, stjóri Chelsea.
Mynd: EPA
Enzo Fernandez rífur sig úr að ofan.
Enzo Fernandez rífur sig úr að ofan.
Mynd: EPA
Liam Rosenior, stjóri Chelsea, spjallaði við fjölmiðlamenn í dag og segist hafa fundið út hvaðan lekinn hefur komið en síðustu tvo leiki hefur byrjunarliðinu verið lekið í blöðin.

„Við vitum hvaðan þetta kom. Þetta gerðist ekki í illum hug út í mig eða liðið. Það er búið að bregðast við ástandinu," segir Rosenior.

Hann fór ekki nánar út í sökudólginn en samkvæmt frétt Guardian láku upplýsingarnar hvorki frá leikmanni né einhverjum í starfsliðinu.

Enzo ánægður hjá Chelsea og vill ná árangri
Chelsea tapaði einvíginu gegn Paris Saint-Germain í Meistaradeildinni samtals 8-2 en eftir seinni leikinn sagði argentínski landsliðsmaðurinn Enzo Fernandez að framtíð sín væri í óvissu eftir sumarið.

„Ég veit það ekki, það eru átta leikir eftir og enski bikarinn. Svo er HM og svo sjáum við hvað gerist," sagði Fernandez við ESPN í Brasilíu.

Rosenior átti langt spjall við leikmanninn fyrir æfingu í dag.

„Ekki bara um þessi ummæli hans heldur bara um hvernig líðan hans væri og hverjar hans skoðanir væru á því hvernig liðið gæti bætt sig. Hann er einn af fyrirliðunum," segir Rosenior.

„Hann gerði mér það alveg ljóst hversu ánægður hann er hjá félaginu, hversu sterka löngun hann hefði til að njóta árangurs með liðinu. Hann sagði einnig að þegar tilfinningarnar væru miklar væri hægt að taka orð úr samhengi. Hann er með hugann algjörlega við Chelsea og vill ná árangri hér."

Chalobah frá í sex vikur
Varnarmaðurinn Trevoh Chalobah meiddist illa á ökkla gegn PSG og fór af velli á börum. Hann verður frá í sex vikur.

„Það er ekki gott að Trevor sé frá í þennan tíma en meiðslin eru allavega sem betur fer ekki næstum eins alvarleg og við óttuðumst fyrst. Við erum að tala um sex vikur eða svo," segir Rosenior.

Chelsea heimsækir Everton í ensku úrvalsdeildinni á laugardaginn.
Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 31 21 7 3 61 22 +39 70
2 Man City 30 18 7 5 60 28 +32 61
3 Man Utd 30 15 9 6 54 41 +13 54
4 Aston Villa 30 15 6 9 40 37 +3 51
5 Liverpool 30 14 7 9 49 40 +9 49
6 Chelsea 30 13 9 8 53 35 +18 48
7 Brentford 30 13 6 11 46 42 +4 45
8 Everton 30 12 7 11 34 35 -1 43
9 Newcastle 30 12 6 12 43 43 0 42
10 Bournemouth 30 9 14 7 44 46 -2 41
11 Fulham 30 12 5 13 40 43 -3 41
12 Brighton 30 10 10 10 39 36 +3 40
13 Sunderland 30 10 10 10 30 35 -5 40
14 Crystal Palace 30 10 9 11 33 35 -2 39
15 Leeds 30 7 11 12 37 48 -11 32
16 Tottenham 30 7 9 14 40 47 -7 30
17 Nott. Forest 30 7 8 15 28 43 -15 29
18 West Ham 30 7 8 15 36 55 -19 29
19 Burnley 30 4 8 18 32 58 -26 20
20 Wolves 31 3 8 20 24 54 -30 17
Athugasemdir
banner