Það eru áhugaverðir leikir á dagskrá í íslenska boltanum í dag þar sem úrslitaleikir Lengjubikarsins og Bose bikarsins fara fram.
Stjarnan spilar við Íslandsmeistara Víkings R. í úrslitaleik Bose bikarsins í Miðgarði.
Þá eigast Fylkir og KR við í úrslitaleik Lengjubikars karla. Leikið verður á tekk vellinum í Árbæ eftir að heimamenn komust í úrslitaleikinn með góðum sigri gegn Þór á Greifavellinum í vikunni. KR rúllaði yfir Stjörnuna í Garðabæ um síðustu helgi til að tryggja sér farmiða í úrslitin.
Frábær árangur hjá Lengjudeildarliði Fylkis sem var aðeins fjórum stigum frá fallsæti í fyrra.
Í B-deild Lengjubikarsins mætast Hvíti riddarinn og Þróttur Vogum í botnslag í karlaflokki á sama tíma og HK fær Keflavík í heimsókn í afar spennandi viðureign í kvennaflokki.
HK þarf sigur til að jafna KR á toppi deildarinnar á meðan Keflavík er einu stigi á eftir HK og getur klifrað upp í 2. sætið með sigri.
Að lokum eru fjórir leikir á dagskrá í Mjólkurbikar karla.
Bose bikarinn - Úrslitaleikur
17:00 Stjarnan - Víkingur R. (Miðgarður)
Lengjubikar karla - Úrslitaleikur A-deild
14:00 Fylkir - KR (tekk VÖLLURINN)
Lengjubikar karla - B deild, riðill 3
12:00 Hvíti riddarinn - Þróttur V. (Malbikstöðin að Varmá)
Lengjubikar kvenna - B deild
11:30 HK - Keflavík (Kórinn)
Mjólkurbikar karla
13:00 Reynir H. - Elliði (Ólafsvíkurvöllur)
14:00 Smári - Skallagrímur (Fagrilundur - gervigras)
14:00 Einherji - Neisti D. (Rafey-völlurinn)
16:00 RB - Reynir S. (Nettóhöllin)
Athugasemdir


