Roma 3 - 4 Bologna
0-1 Jonathan Rowe ('22 )
1-1 Evan Ndicka ('32 )
1-2 Federico Bernardeschi ('45+2 , víti)
1-3 Santiago Castro ('58 )
2-3 Donyell Malen ('69 , víti)
3-3 Lorenzo Pellegrini ('80 )
3-4 Nicolo Cambiaghi ('111 )
0-1 Jonathan Rowe ('22 )
1-1 Evan Ndicka ('32 )
1-2 Federico Bernardeschi ('45+2 , víti)
1-3 Santiago Castro ('58 )
2-3 Donyell Malen ('69 , víti)
3-3 Lorenzo Pellegrini ('80 )
3-4 Nicolo Cambiaghi ('111 )
Skemmtilegum fótboltaleik er lokið í 16-liða úrslitum Evrópudeildarinnar þar sem Roma og Bologna áttust við í ítölskum slag.
Liðin höfðu gert 1-1 jafntefli í fyrri leiknum í Bologna og létu mörkin ekki standa á sér í kvöld.
Jonathan Rowe kom Bologna yfir í fyrri hálfleik með frábæru skoti utan vítateigs en Evan Ndicka jafnaði fyrir heimamenn með skalla eftir hornspyrnu tíu mínútum síðar.
Stephan El Shaarawy gerðist svo sekur um klaufalegt brot innan vítateigs í uppbótartíma fyrri hálfleiks og skoraði hinn reynslumikli Federico Bernardeschi örugglega af vítapunktinum. Staðan var því 1-2 í leikhlé.
Santi Castro tvöfaldaði forystu Bologna í síðari hálfleik eftir frábæra pressu frá Rowe en heimamenn minnkuðu muninn úr vítaspyrnu tíu mínútum síðar. Donyell Malen skoraði af punktinum eftir klunnalegt brot hjá Remo Freuler innan teigs.
Lorenzo Pellegrini jafnaði metin á 80. mínútu eftir flottan undirbúning frá Robinio Vaz svo staðan var orðin 3-3 og þurfti fara í framlengingu.
Þar hélst staðan jöfn þar til á 111. mínútu þegar Nicoló Cambiaghi skoraði sigurmarkið eftir frábært samspil við Thijs Dallinga eftir langa sendingu upp völlinn.
Rómverjar náðu ekki að jafna leikinn í þriðja sinn svo lokatölur urðu 3-4 fyrir Bologna, sem mætir Aston Villa í 8-liða úrslitum.
19.03.2026 21:58
Evrópudeildin: Íslendingarnir úr leik
Athugasemdir



