Unai Emery þjálfari Aston Villa var mjög ánægður eftir flottan sigur gegn Lille í 16-liða úrslitum Evrópudeildarinnar í gærkvöldi.
Aston Villa vann útileikinn í síðustu viku og fór því inn í heimaleikinn með 1-0 forystu. Lærlingar Emery stóðu sig vel og unnu 2-0 þökk sé mörkum frá Jadon Sancho og fyrirliðanum John McGinn sem er kominn aftur í liðið eftir meiðsli.
„John (McGinn) þarf á mínútum að halda og þetta voru mikilvægar mínútur sem hann fékk í dag," sagði Emery, en McGinn lék fyrstu 70 mínútur leiksins áður en honum var skipt útaf fyrir Emiliano Buendía.
„Hann er mjög mikilvægur leikmaður fyrir liðið og vonandi fáum við Youri Tielemans og Matty Cash aftur úr meiðslum sem fyrst. Við þurfum á þeim að halda, við spilum betur með þá í hópnum."
Sancho lagði opnunarmark leiksins upp fyrir McGinn áður en hann innsiglaði sigurinn sjálfur.
„Sancho spilaði mjög vel í kvöld, hann býr yfir svakalegum gæðum sem hann náði að sýna á köflum í þessum leik.
„Við þurftum á þessum sigri að halda, við mættum erfiðum andstæðingum og stóðum okkur vel. Við vorum ekki að spila neinn glimrandi fótbolta en við gerðum það sem þurfti að gera, við sinntum vinnunni okkar. Við nýttum færin okkar og gáfum lítið af færum á okkur."
Aston Villa mætir Bologna í 8-liða úrsitum. Fyrri leikurinn fer fram á Ítalíu 9. apríl.
15.02.2026 10:00
Býst við meiru frá Sancho
Athugasemdir





