Delap, Mainoo, Bastoni, Atubolu, Vicario, Dewsbury-Hall, Guimaraes og fleiri góðir í slúðri dagsins
   lau 21. mars 2026 13:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Welbeck gerði það sem bara tveir aðrir hafa gert
Danny Welbeck.
Danny Welbeck.
Mynd: EPA
Danny Welbeck kom Brighton yfir í leik gegn Liverpool sem núna stendur yfir í ensku úrvalsdeildinni.

Welbeck varð þarna þriðji leikmaðurinn í sögu ensku úrvalsdeildarinnar til að skora yfir 10 mörk á einu tímabili 35 ára gamall eða eldri.

Aðeins Zlatan Ibrahimovic og Gary McAllister höfðu náð því afreki áður en Welbeck bættist í þann flokk í dag.

Zlatan skoraði 17 mörk fyrir Manchester United 2016/17 tímabilið og McAllister skoraði ellefu mörk fyrir Coventry 1999/2000 tímabilið.

Welbeck er að eiga sitt besta tímabil á ferlinum en hann er auðvitað að vonast til að komast á HM með Englandi í sumar.
Athugasemdir
banner
banner