Börsungar vilja Rashford aftur á láni - Ndidi gæti farið til Man Utd - Hár verðmiði á Tonali
banner
   fim 19. mars 2026 16:10
Elvar Geir Magnússon
Ummæli Tudor um dómarann á borð aganefndar
Dómarinn Thomas Bramall.
Dómarinn Thomas Bramall.
Mynd: EPA
Igor Tudor, bráðabirgðastjóri Tottenham, er kominn á borð aganefndar fyrir ummæli sín um dómarann Thomas Bramall í 2-1 tapi Spurs gegn Fulham þann 1. mars.

Eftir leikinn sagði Tudor að Bramall hefði verið hliðhollur heimaliðinu og sagði einnig að hann hefði engan skilning á fótbolta.

Króatinn var reiður yfir því að fyrsta mark Fulham fékk að standa þar sem hann vldi fá brot á Raul Jimenez áður en Harry Wilson skoraði.

„Ég var ekki hrifinn af dómaranum í dag, hann var of mikill heimadómari. Mér leið ekki vel með hann. Allar ákvarðanir féllu með þeim. Hann skilur ekki fótbolta, er ekki með tilfinningu fyrir því hvað er rangt og hvað er rétt," sagði Tudor.

Enska fótboltasambandið telur að ummæli Tudor dragi heiðarleika dómarans í efa. Tottenham og Tudor fá til mánudags að svara fyrir sig.
Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 31 21 7 3 61 22 +39 70
2 Man City 30 18 7 5 60 28 +32 61
3 Man Utd 30 15 9 6 54 41 +13 54
4 Aston Villa 30 15 6 9 40 37 +3 51
5 Liverpool 30 14 7 9 49 40 +9 49
6 Chelsea 30 13 9 8 53 35 +18 48
7 Brentford 30 13 6 11 46 42 +4 45
8 Everton 30 12 7 11 34 35 -1 43
9 Newcastle 30 12 6 12 43 43 0 42
10 Bournemouth 30 9 14 7 44 46 -2 41
11 Fulham 30 12 5 13 40 43 -3 41
12 Brighton 30 10 10 10 39 36 +3 40
13 Sunderland 30 10 10 10 30 35 -5 40
14 Crystal Palace 30 10 9 11 33 35 -2 39
15 Leeds 30 7 11 12 37 48 -11 32
16 Tottenham 30 7 9 14 40 47 -7 30
17 Nott. Forest 30 7 8 15 28 43 -15 29
18 West Ham 30 7 8 15 36 55 -19 29
19 Burnley 30 4 8 18 32 58 -26 20
20 Wolves 31 3 8 20 24 54 -30 17
Athugasemdir