Lens 5 - 1 Angers
1-0 Florian Thauvin ('13 )
2-0 Odsonne Edouard ('25 )
3-0 Mamadou Sangare ('39 )
4-0 Odsonne Edouard ('48 )
4-1 Lanroy Machine ('62 )
5-1 Matthieu Udol ('72 )
1-0 Florian Thauvin ('13 )
2-0 Odsonne Edouard ('25 )
3-0 Mamadou Sangare ('39 )
4-0 Odsonne Edouard ('48 )
4-1 Lanroy Machine ('62 )
5-1 Matthieu Udol ('72 )
Odsonne Édouard, fyrrum framherji Crystal Palace, skoraði tvennu í stórsigri Lens í eina leik kvöldsins í efstu deild franska boltans.
Florian Thauvin, fyrrum leikmaður Newcastle, skoraði fyrsta mark leiksins átti svo tvær stoðsendingar.
Lens vann 5-1 gegn Angers til að endurheimta toppsæti Ligue 1. Liðið situr þar tveimur stigum fyrir ofan ríkjandi Frakklands- og Evrópumeistara Paris Saint-Germain sem eiga tvo leiki til góða.
PSG getur því komist í fjögurra stiga forystu með tveimur sigrum, en stórveldið heimsækir OGC Nice annað kvöld og á svo heimaleik við Toulouse beint eftir landsleikjahlé.
Lens heimsækir Hákon Arnar Haraldsson og félaga til Lille fyrstu helgina í apríl.
Athugasemdir


