Mathys Tel og Junior Kroupi hafa skorað þrjú mörk í undankeppninni. Wilson Odobert (Tottenham) er markahæstur hjá Frökkum með fjögur mörk en hann er meiddur.
Frakkar hafa tilkynnt hópinn fyrir komandi leiki franska U21 landsliðsins. Gérald Baticle, þjálfari liðsins, er með liðið á toppi riðilsins í undankeppni EM 2027 og framundan er útileikur gegn Lúxemborg og svo heimaleikur gegn Íslandi. Leikurinn gegn Íslandi verður spilaður í Auxerre. Ísland mætir fyrst Eistlandi á Þróttarvelli áður en haldið verður til Frakklands.
Frakkar eru efstir með tíu stig úr fjórum leijum, svo koma Færeyingar með níu stig úr sex leikjum og í kjölfarið koma svo Sviss og Ísland með átta stig úr fimm leikjum.
Leny Yoro er byrjunarliðsmaður hjá Manchester United þessa stundina og hann er í hópnum hjá Frökkum. Ásamt honum eru þeir Lesley Ugochukwu (Burnley), Éli Junior Kroupi (Bournemouth), Jaydee Canvot (Crystal Palace) og Mathys Tel (Tottenham) í hópnum. Hinn átján ára gamli Ayyoub Bouaddi hjá Lille er líka í hópnum en Morokkó vill fá hann í sitt landslið.

Hópurinn
Markverðir
Ewen Jaouen, Guillaume Restes, Robin Risser
Varnarmenn
Jeanuël Belocian, Jaydee Canvot, Saël Kumbedi, Ismaëlo Ganiou, Christian Mawissa, Nhoa Sangui, Lenny Yoro, Nathan Zeze
Miðjumenn
Valentin Atangana, Ayyoub Bouaddi, Mamadou Coulibaly, Kévin Danois, Lesley Ugochukwu
Sóknarmenn
Jean-Mattéo Bahoya, Saïmon Bouabré, Sidiki Chérif, Mamadou Diakhon, Éli Junior Kroupi, Senny Mayula, Mathys Tel
Landslið karla - U21 - Undankeppni EM
| Lið | L | U | J | T | Mörk | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|---|---|---|
| 1. Frakkland | 4 | 3 | 0 | 1 | 14 - 2 | +12 | 10 |
| 2. Færeyjar | 6 | 3 | 3 | 0 | 6 - 12 | -6 | 9 |
| 3. Sviss | 5 | 2 | 1 | 2 | 7 - 4 | +3 | 8 |
| 4. Ísland | 5 | 2 | 1 | 2 | 7 - 5 | +2 | 8 |
| 5. Lúxemborg | 5 | 1 | 3 | 1 | 6 - 9 | -3 | 4 |
| 6. Eistland | 5 | 0 | 3 | 2 | 5 - 13 | -8 | 2 |
Athugasemdir