Hörð barátta um Rogers - Juventus vill Alisonn - Olise orðaður við Real
   lau 21. mars 2026 05:55
Ívan Guðjón Baldursson
Þýskaland í dag - Dortmund heldur í vonina
Mikilvægur fallbaráttuslagur hjá Ísaki
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Stórveldi FC Bayern er með níu stiga forystu á toppi þýsku deildarinnar þegar átta umferðir eru eftir af deildartímabilinu og getur liðið fært sig stóru skrefi nær titlinum með sigri í dag.

Lærlingar Vincent Kompany fá Union Berlin í heimsókn á sama tíma og Ísak Bergmann Jóhannesson og félagar í liði Köln mæta til leiks.

Köln tekur á móti Borussia Mönchengladbach í mikilvægum fallbaráttuslag, þar sem aðeins þrjú stig skilja liðin að frá hvoru öðru sem stendur.

Bayer Leverkusen þarf þá sigur gegn Heidenheim til að blanda sér í meistaradeildarbaráttuna á meðan Wolfsburg og Werder Bremen etja kappi í spennandi fallbaráttuslag tveggja fallinna risa sem hafa valdið vonbrigðum á síðustu árum.

Borussia Dortmund tekur á móti nýliðum Hamburger SV í lokaleik dagsins. Dortmund ætlar að reyna að halda pressu á Bayern í titilbaráttunni ef svo ólíklega færi að Bæjarar misstigu sig.

Leikir dagsins
14:30 Heidenheim - Leverkusen
14:30 Bayern - Union Berlin
14:30 Köln - Gladbach
14:30 Wolfsburg - Werder Bremen
17:30 Dortmund - Hamburger
Stöðutaflan Þýskaland Bundesliga - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Bayern 28 23 4 1 100 27 +73 73
2 Dortmund 28 19 7 2 60 28 +32 64
3 RB Leipzig 28 16 5 7 55 36 +19 53
4 Stuttgart 28 16 5 7 56 38 +18 53
5 Hoffenheim 28 15 5 8 55 41 +14 50
6 Leverkusen 28 14 7 7 58 39 +19 49
7 Frankfurt 28 10 9 9 52 53 -1 39
8 Freiburg 28 10 7 11 41 47 -6 37
9 Mainz 28 8 9 11 35 43 -8 33
10 Union Berlin 28 8 8 12 32 47 -15 32
11 Augsburg 28 9 5 14 34 51 -17 32
12 Hamburger 28 7 10 11 32 41 -9 31
13 Gladbach 28 7 9 12 35 48 -13 30
14 Werder 28 7 7 14 31 49 -18 28
15 Köln 28 6 9 13 40 49 -9 27
16 St. Pauli 28 6 7 15 25 45 -20 25
17 Wolfsburg 28 5 6 17 38 63 -25 21
18 Heidenheim 28 3 7 18 29 63 -34 16
Slapp
banner