Harry Maguire, 33 ára varnarmaður Manchester United, hefur verið valinn í enska landsliðshópinn sem mætir Úrúgvæ og Japan í vináttulandsleikjum í komandi glugga.
Enska landsliðið er að búa sig undir HM en Maguire hefur ekki leikið fyrir liðið síðan 2024 en á farsælan landsliðsferil og leikið 64 landsleiki.
Hann hefur verið lykilmaður í vörn Manchester United undir stjórn bráðabirgðastjórans Michael Carrick.
Enska landsliðið er að búa sig undir HM en Maguire hefur ekki leikið fyrir liðið síðan 2024 en á farsælan landsliðsferil og leikið 64 landsleiki.
Hann hefur verið lykilmaður í vörn Manchester United undir stjórn bráðabirgðastjórans Michael Carrick.
Miðjumaðurinn ungi Kobbie Mainoo hjá Manchester United fær einnig kallið en hann er kominn í stórt hlutverk á ný eftir að hafa fengið fá tækifæri meðan Rúben Amorim var á Old Trafford. Liðsfélagi hans, Luke Shaw, er hinsvegar ekki valinn.
Lewis Hall hjá Newcastle er í hópnum. Ekkert pláss er fyrir Alex Scott hjá Bournemouth í hópnum en James Garner hjá Everton er valinn og gæti leikið sinn fyrsta landsleik.
England mætir Úrugvæ 27. mars og Japan 31. mars. Báðir leikirnir verða spilaðir á Wembley. Tuchel velur stóran 35 manna hóp fyrir þetta verkefni.
Markverðir: Dean Henderson (Crystal Palace), Jordan Pickford (Everton), James Trafford (Manchester City), Aaron Ramsdale (Newcastle United), Jason Steele (Brighton & Hove Albion)
Varnarmenn: Dan Burn (Newcastle United), Marc Guéhi (Crystal Palace), Lewis Hall (Newcastle United), Ezri Konsa (Aston Villa), Tino Livramento (Newcastle United), Harry Maguire (Manchester United), Nico O'Reilly (Manchester City), Jarell Quansah (Bayer Leverkusen), Djed Spence (Tottenham Hotspur), John Stones (Manchester City), Fikayo Tomori (AC Milan)
Miðjumenn: Elliot Anderson (Nottingham Forest), Jude Bellingham (Real Madrid), James Garner (Everton), Jordan Henderson (Brentford), Kobbie Mainoo (Manchester United), Declan Rice (Arsenal), Morgan Rogers (Aston Villa), Adam Wharton (Crystal Palace)
Sóknarmenn: Jarrod Bowen (West Ham United), Dominic Calvert-Lewin (Leeds United), Eberechi Eze (Arsenal), Phil Foden (Manchester City), Anthony Gordon (Newcastle United), Harry Kane (Bayern Munich), Noni Madueke (Arsenal), Cole Palmer (Chelsea), Marcus Rashford (Barcelona, loan from Manchester United), Bukayo Saka (Arsenal), Dominic Solanke (Tottenham Hotspur)
Athugasemdir


