Sex úrvalsdeildarleikmenn
Franska ofurstjarnan Kylian Mbappé er með í franska landsliðshópnum sem spilar æfingalandsleiki við Brasilíu og Kólumbíu í komandi landsleikjahlé.
Mbappé hefur misst af síðasta mánuði vegna meiðsla en fékk að spila 22 mínútur í sigri gegn Manchester City á Etihad leikvanginum í miðri viku.
Franska landsliðið er talið vera með þeim sigurstranglegustu fyrir komandi heimsmeistaramót og velur Didier Deschamps sterkan landsliðshóp fyrir æfingalandsleikina. Þetta verður síðasta stórmót Deschamps sem landsliðsþjálfari Frakklands eftir fjórtán ár við stjórnvölinn.
Það eru sex leikmenn úr ensku úrvalsdeildinni í landsliðshóp Frakka sem má sjá hér fyrir neðan. Fjórir varnarmenn og tveir sóknarmenn.
???????????? ???????????????????? ???????????????????? ???????? ????????????????! ????????
— French Team ?? (@FrenchTeam) March 19, 2026
Heading to the United States with 2 matches against Brazil ???????? and Colombia ????????
???? See you on Monday at Clairefontaine for the arrival ???? pic.twitter.com/27BXT2xOHY
Athugasemdir



