Davíð Snær Jóhannsson var fyrr í þessum mánuði keyptur til norska félagsins Álasunds frá FH. Hann ræddi við Fótbolta.net á dögunum um tímabilið og skiptin.
„Mér líst mjög vel á þetta, er með spennandi verkefni fyrir framan mig sem ég er mjög tilbúinn í að tækla. Það er verið að búast við því að ég leggi strax eitthvað að mörkum til liðsins. Þeir eru að fá mig sem 'áttu' og eru að reyna búa til lið sem á að fara beint aftur upp í efstu deild," sagði Davíð.
Er draumur að Álasund komi sér upp úr B-deildinni árið 2024 og Davíð verði því í efstu deild í Noregi tímabilið 2025?
„Klárt mál. Eina stefna félagsins og hjá mér er að fara beint aftur upp."
Hann átti virkilega gott tímabil með FH í Bestu deildinni en er á leið í norsku B-deildina. Er hann eitthvað hikandi að taka það skref?
„Nei, alls ekki. Þeir seldu mér verkefnið mjög vel, eru með ungt og mjög spennandi lið og þrátt fyrir slæmt gengi á síðasta tímabili þá voru samt margir ljósir punktar og mikið til að byggja ofan á."
„Ég lít á þetta sem stærra umhverfi, stærri vellir, fleiri augu á deildinni. Ég á eftir að sjá hvernig gæðin eru á deildinni. Þarna eru lið eins og Vålerenga, Start, Sogndal og Stabæk. Þetta eru sterk lið."
„Það voru vonbrigði fyrir þá að falla, en ég skynja líka rosamikla trú á verkefninu. Þetta er ekkert ósvipað verkefni og ég lenti í með Keflavík 2018 þegar við förum niður. Þar voru leikmenn eins og ég, Rúnar Þór sem er að standa sig í Hollandi, Ísak Óli og Sindri. Þetta var mikill kjarni og mikil tilhlökkun fyrir framtíðinni. Ég sé það eins hjá Álasundi."
Mjög fallegur staður
Álasund, Hrikalega fallegur bær. https://t.co/GMFfYzS1az pic.twitter.com/DPEv0G4TUS
— Hrafnkell Freyr Àgústsson (@hrafnkellfreyr) December 12, 2023
„Þetta er mjög fallegur staður og það verður mjög gaman að búa þarna. Það er mikil fjölskyldustemning. Ég er mjög spenntur fyrir þessu."
Kom til greina að vera áfram hjá FH eða var miðjumaðurinn ákveðinn í að taka skrefið út á þessum tímapunkti.
„Það kom auðvitað til greina að vera áfram. Ég skoðaði alla mína möguleika eins og ég geri eftir hvert einasta tímabil. Mér fannst þetta vera spennandi og ákvað því að taka þennan möguleika."
„Staða sem ég held að ég geti gert mér góðan feril úr"
Davíð er 21 árs en hefur þrátt fyrir ungan aldur verið lengi í meistaraflokki. Eins og hann nefndi lék hann með Keflavík árið 2018. Hann kom til FH árið 2022 og var því að klára sitt annað tímabil í Hafnarfirði. Hann skoraði sjö mörk í Bestu deildinni og vann sér inn sæti í U21 landsliðinu.
„Ég er virkilega ánægður með tímabilið, þetta var skref upp á við. Fótboltaferillinn er eitt stórt ævintýri og það er alltaf gott að taka skref upp á við. Ég held FH-ingar geti verið mjög sáttir með tímabilið þó að í mómentinu hafi verið svekkelsi að komast ekki í Evrópu því það var mikill séns. Mér fannst klúbburinn taka stórt skref upp á við og ég sé ekkert annað í stöðunni en að það verði annað skref tekið á næsta ári."
„Ég var sóknarmaður, var ýmist að spila úti á kanti, í holunni eða sem aftari framherji af tveimur. Það hentar mér vel að vera í þessari holu stöðu hvort sem það sé aðeins úti á kanti og koma inn eða vera í 'tíunni' og með leyfi til þess að fara út á kantinn. Heimir gaf mér fullt leyfi til að leyfa mínum hæfileikum að skína. Það má segja að þetta hafi verið örlítið framar á vellinum en ég hef verið áður. Þetta er staða sem ég held að ég geti gert mér góðan feril úr."
Talar reiprennandi sænsku
Davíð fer út til Noregs í byrjun nýs árs. „Fyrsta æfingin er 8. janúar og ég verð mættur rétt fyrir það. Ferðalagið er yfirleitt þannig að flogið er til Osló og þaðan til Álasunds. Þetta er svipað og fyrir þá sem eiga heima á Akureyri, þarft að millilenda. Þetta er ekkert brjálæðislega langt ferðalag."
Hann var spurður út í norskuna og sló aðeins um sig með smá sænsku sem hann lærði þegar faðir hans Jóhann Birnir Guðmundsson lék með Örgryte og GAIS þegar Davíð var 3-6 ára. „Það verður því held ég ekkert mál að læra norskuna. Ég er með góðan grunn í sænskunni og tala hana eiginlega reiprennandi." Davíð er fæddur í Osló en faðir hans lék á þeim tíma með Lyn.
Ætlar að sýna Vålerenga hverju þeir misstu af
Davíð minntist á Vålerenga fyrr í þessu viðtali. Hann var nálægt því að ganga í raðir Vålerenga á sínum tíma.
„Ef það hefði ekki verið þjálfaraskipti þá held ég að það hefði gengið í gegn á sínum tíma. Það verður gaman að koma aftur þangað. Maður verður að eiga alvöru leik á móti þeim, sýna hverju þeir misstu af."
08.05.2020 11:00
Davíð Snær áfram hjá Keflavík - Breytt staða hjá Valerenga

























