Man City bjartsýnt á að skáka Liverpool í baráttu um Guehi - Man City hefur áhuga á Michael Kayode - Rudiger aftur til Chelsea?
   fim 08. janúar 2026 19:40
Brynjar Ingi Erluson
Ronaldo skoraði í tapi - Fjórum stigum frá toppnum
Cristiano skoraði eina mark Al Nassr
Cristiano skoraði eina mark Al Nassr
Mynd: EPA
Portúgalski sóknarmaðurinn Cristiano Ronaldo skoraði eina mark Al Nassr í 2-1 tapi gegn Al Qadsiah í sádi-arabísku deildinni í kvöld.

Ronaldo heldur áfram að eltast við 1000 mörk og færist hann nær því með hverjum deginum.

Al Nassr er í titilbaráttu en liðið lenti tveimur mörkum undir áður en Ronaldo minnkaði muninn með marki úr vítaspyrnu sem var hans 958. mark á ferlinum.

Svekkjandi úrslit engu að síður fyrir Ronaldo og hans menn sem eru í 2. sæti fjórum stigum frá toppliði Al Hilal sem vann 3-0 sigur á Al Hazem fyrr í dag. Ruben Neves skoraði og lagði upp. Darwin Nunez, fyrrum leikmaður Liverpool, gerði þriðja mark Al Hilal.


Athugasemdir
banner
banner