Man Utd með augastað á Tchouameni - Diomande efstur á óskalista Liverpool
   þri 31. mars 2026 13:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Cucurella skýtur á ráðamenn Chelsea: Ég hefði ekki gert þetta
Marc Cucurella er lykilmaður hjá Chelsea
Marc Cucurella er lykilmaður hjá Chelsea
Mynd: EPA
Maresca var látinn fara í vetur. Chelsea vann Sambandsdeildina og HM félagsliða undir hans stjórn.
Maresca var látinn fara í vetur. Chelsea vann Sambandsdeildina og HM félagsliða undir hans stjórn.
Mynd: EPA
Marc Cucurella, leikmaður Chelsea, lét ansi athyglisverð ummæli falla í landsliðsverkefni með Spáni. Hann tjáði sig um Enzo Maresca sem var látinn fara sem stjóri Chelsea í byrjun árs. Liam Rosenior tók við liðinu í kjölfarið.

„Með Enzo Maresca við stjórnvölinn þá vorum við stöðugri, því við höfðum unnið með honum í átján mánuði. Ef horft er í fyrra undirbúningstímabilið með honum þá voru efasemdir. Það þarf ákveðið ferili fyrir alla leikmenn að skilja hvað eigi að gera."

„Á síðustu mánuðunum með Maresca spiluðum við nánast með hjartanu. Ef við skiptum um kerfi, þá vissum við hvað átti að gera. Það þarf þann tíma,"
segir spænski vinstri bakvörðurinn.

„Þegar stjórinn gefur þér þá trú og býður þér tækifæri til að berjast um titla, þá deyrðu fyrir hann. Augnablikið sem Maresca fór hafði mikil áhrif á okkur. Þessar ákvarðanir eru teknar af félaginu. Ef þú spyrð mig, þá hefði ég ekki tekið þessa ákvörðun."

„Það myndast óstöðugleiki í kringum félagið. Við vorum fyrst með bráðabirgðastjóra, svo nýjan stjóra, með nýjar hugmyndir en engan tíma til að vinna með þær. Það er best að gera svona breytingar í lok tímabils. Þá fær stjórinn og leikmennirnir tíma til að verða tilbúnir, heilt undirbúningstímabil. Sjáið Arsenal núna, berjast um alla titla. Þeir hafa verið með Arteta í næstum sjö ár og hafa ekki unnið mikið. En verkefnið er að skila árangri núna,"
bætti Cucurella við.
Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 33 21 7 5 63 26 +37 70
2 Man City 32 20 7 5 65 29 +36 67
3 Man Utd 33 16 10 7 58 45 +13 58
4 Aston Villa 33 17 7 9 47 41 +6 58
5 Liverpool 33 16 7 10 54 43 +11 55
6 Brighton 34 13 11 10 46 39 +7 50
7 Chelsea 34 13 9 12 53 43 +10 48
8 Brentford 33 13 9 11 48 44 +4 48
9 Bournemouth 33 11 15 7 50 50 0 48
10 Everton 33 13 8 12 40 39 +1 47
11 Sunderland 33 12 10 11 36 40 -4 46
12 Fulham 33 13 6 14 43 46 -3 45
13 Crystal Palace 32 11 10 11 35 36 -1 43
14 Newcastle 33 12 6 15 46 49 -3 42
15 Leeds 33 9 12 12 42 49 -7 39
16 Nott. Forest 33 9 9 15 36 45 -9 36
17 West Ham 33 8 9 16 40 57 -17 33
18 Tottenham 33 7 10 16 42 53 -11 31
19 Burnley 33 4 8 21 34 67 -33 20
20 Wolves 33 3 8 22 24 61 -37 17
Slapp
banner
banner
banner