Mikið Newcastle slúður - Endurkoma til Chelsea? - Rodri til Real - Torres á Old Trafford
   þri 31. mars 2026 14:00
Kári Snorrason
Nikolaj Hansen í sögubækurnar og stærsti sigurinn á þessari öld
Nikolaj Hansen varð fyrsti leikmaðurinn til að skora tvö mörk tvívegis í keppninni frá því að hún var tekin upp í núverandi mynd.
Nikolaj Hansen varð fyrsti leikmaðurinn til að skora tvö mörk tvívegis í keppninni frá því að hún var tekin upp í núverandi mynd.
Mynd: Víkingur - Hörður Ágústsson
Víkingur vann Meistarakeppnina í fimmta sinn.
Víkingur vann Meistarakeppnina í fimmta sinn.
Mynd: Víkingur - Hörður Ágústsson
Víðir Sigurðsson ásamt Kára Árnassyni, yfirmanni fótboltamála hjá Víkingi.
Víðir Sigurðsson ásamt Kára Árnassyni, yfirmanni fótboltamála hjá Víkingi.
Mynd: Árni Torfason
Ánægðir Víkingar eftir leik.
Ánægðir Víkingar eftir leik.
Mynd: Víkingur - Hörður Ágústsson
Óskar Borgþórsson innsiglaði sigurinn með laglegu marki.
Óskar Borgþórsson innsiglaði sigurinn með laglegu marki.
Mynd: Víkingur - Hörður Ágústsson
Nikolaj Hansen skráði sig á spjöld sögunnar í Meistarar meistaranna er hann skoraði tvö mörk í 4-0 sigri Víkings gegn Vestra á sunnudaginn.

Hann varð fyrsti leikmaðurinn til að skora tvö mörk í tvígang í keppninni. Víðir Sigurðsson bendir á afrek Nikolaj í færslu sem hann birti á Facebook síðu sinni.

Þar bendir Víðir jafnframt á að fjögurra marka sigur Víkings sé sá stærsti á þessari öld.

Færsla Víðis í heild sinni:
Víkingar unnu stærsta sigurinn í Meistarakeppni karla í fótbolta í 31 ár þegar þeir sigruðu Vestra, 4-0, í Fossvoginum í dag og Nikolaj Hansen skráði sig á spjöld sögunnar í keppninni.

Skagamenn sigruðu KR-inga, 5-0, í Meistarakeppninni árið 1995 og það er stærsti sigurinn frá því keppnin var tekin upp í núverandi mynd árið 1980. Víkingar eru jafnframt fyrsta liðið frá 1996 sem nær að skora fjögur mörk eða fleiri í þessum árlega leik.

Nikolaj Hansen skoraði tvö fyrstu mörk Víkings í dag og þar með er hann fyrsti leikmaðurinn í sögunni til að skora tvívegis tvö mörk í Meistarakeppninni frá því hún var tekin upp í núverandi mynd.

Nikolaj skoraði líka tvö mörk fyrir Víking í Meistarakeppninni árið 2023 en mátti þá reyndar sætta sig við ósigur því þá lagði Breiðablik Víking að velli, 3-2.

Engin þrenna í þrjátíu ár
Nikolaj var nærri því að skora þrennu í leiknum og hefði þá orðið fyrstur í 30 ár til að skora þrjú mörk í leik í Meistarakeppni karla.
Aðeins þrír leikmenn hafa skorað þrennu í keppninni frá 1980. Steingrímur Jóhannesson varð síðastur til þess, í 5-3 sigri ÍBV á ÍA árið 1996, og hinir tveir skoruðu í sama leiknum átta árum áður.

Jón Gunnar Bergs skoraði þrjú marka Vals í sigri á Fram, 4-3, árið 1988 en Pétur Ormslev skoraði öll þrjú mörk Framara í þeim leik.

Vestri áttu möguleika á að verða þeir fyrstu í 42 ár
Vestri átti möguleika á að verða fyrsta félagið utan efstu deildar til að vinna keppnina í 42 ár. Það hefur aðeins einu sinni gerst, en árið 1984 unnu Eyjamenn sigur á Skagamönnum í Meistaraleiknum, 2-1. Skagamenn höfðu orðið tvöfaldir meistarar árið 1983 en unnu ÍBV í úrslitaleik bikarsins og þar með fengu Eyjamenn, sem féllu óvænt haustið 1983, þátttökurétt í Meistarakeppninni.

Meistarakeppni karla hefur farið fram frá árinu 1969, en þó ekki óslitið. Tvö fyrstu árin mættust Íslands- og bikarmeistararnir í fjögurra leikja einvígi áður en Íslandsmótið hófst, KR vann ÍBV í fyrsta einvíginu árið 1969, en frá 1971 til 1979 var um að ræða þriggja liða keppni með tvöfaldri umferð á milli þeirra þriggja félaga sem voru á leið í Evrópukeppni þá um sumarið.

Sagan
Keppnin hefur verið haldin í núverandi mynd frá árinu 1980, þ.e. ríkjandi Íslandsmeistarar mæta ríkjandi bikarmeisturum. Frá 1980 til 1982 fór þessi leikur fram á miðju sumri en hann var síðan gerður að upphafsleik mótsins frá og með árinu 1983.

Árið 1996 voru tveir Meistaraleikir, hefðbundinn leikur að vori og aftur var leikið um haustið, í lok tímabilsins, þar sem nýkrýndir Íslands- og bikarmeistarar mættust.

Í framhaldinu af því fór enginn leikur fram árið 1997 en í staðinn tveir leikir 1998 þar sem fyrst mættust ÍBV og Keflavík að vori, sem Íslands- og bikarmeistarar 1997, og síðan mættust ÍBV og Leiftur í lok tímabilsins.

Meistarakeppnin féll niður í fjögur ár í framhaldi af þessu umróti, frá 1999 til 2002, þar sem ekki var talið vera pláss fyrir hana í keppnisdagatalinu, en hún var tekin upp að nýju árið 2003. Þá var ekki leikið árið 2021 þar sem ekki var tími fyrir hana um vorið vegna kóvid-faraldursins.

Valur langsigursælasta liðið
Víkingar unnu nú keppnina í fimmta sinn og höfðu áður sigrað árin 1982, 1983, 2022 og 2024.

Valur hefur hinsvegar unnið Meistarakeppni karla langoftast, eða 11 sinnum. KR, Keflavík, Fram og FH hafa unnið sex sinnum hvert félag, ÍA og Víkingur fimm sinnum hvort, ÍBV fjórum sinnum, Stjarnan og Breiðablik tvisvar og KA hefur einu sinni orðið meistari meistaranna.
Valur hefur oftast tekið þátt frá árinu 1969, eða 19 sinnum og Skagamenn koma næstir með 15 skipti.

Vestri er þriðja félagið sem hefur komist í leikinn um Meistarabikarinn án þess að sigra. Leiftur tapaði sínum eina leik árið 1998 og Fylkir sínum eina leik árið 2003. Þá var ÍBA frá Akureyri einu sinni með sem bikarmeistari, árið 1970, en lék þá fjóra leiki, alla gegn Keflavík sem hafði betur á stigum.

Stjarnan er eina taplausa félagið en Garðbæingar hafa sigrað í bæði skiptin sem þeir hafa komist í þennan leik, 2015 og 2019.
Slapp
Athugasemdir
banner
banner
banner