Landsliðsþjálfarinn Arnar Gunnlaugsson tilkynnti í gær tuttugu manna hóp fyrir vináttuleik gegn Mexíkó. Leikurinn fer fram ytra klukkan 02:00 aðfaranótt fimmtudagsins 26. febrúar. Spilað verður í Queretaro í Mexíkó.
Valið hefur verið talsvert gagnrýnt og aðallega sett spurningarmerki við hversu fáir ungir leikmenn séu í hópnum. Fleiri leikmenn eru fæddir 1990 eða fyrr heldur en eftir árið 2001.
Fótbolti.net ræddi við Jörund Áka Sveinsson sem er yfirmaður fótboltamála hjá KSÍ.
Valið hefur verið talsvert gagnrýnt og aðallega sett spurningarmerki við hversu fáir ungir leikmenn séu í hópnum. Fleiri leikmenn eru fæddir 1990 eða fyrr heldur en eftir árið 2001.
Fótbolti.net ræddi við Jörund Áka Sveinsson sem er yfirmaður fótboltamála hjá KSÍ.
„Arnar er bara þjálfarinn og hann velur liðið sitt. Það er bara þannig. Það voru engar skorður eða kvaðir gerðar til hans hvernig hann vildi hafa þetta verkefni. Hann hafði svolítið frítt spil með það. Þetta er niðurstaðan og við bökkum hann upp og stöndum með honum í því," segir Jörundur.
Það eru 20 leikmenn í hópnum og það gefur því auga leið að allavega tveir leikmenn verða að spila 90 mínútur í leiknum. Er það enginn höfuðverkur?
„Það er eitthvað sem þjálfarateymið verður að svara fyrir og glíma við. Ég er blessunarlega laus við að þurfa að díla við það."
„Þetta verður bara spennandi og skemmtilegt. Vonandi fær þjálfarateymið svör við einhverjum spurningum, hann sagði í viðtali við ykkur í gær að hann væri að velja besta liðið. Þetta er hans val og það er bara eins og það er. Það eru ekki alltaf allir sammála um valið, það er bara skemmtilegt og hluti af þessu. Það er ágætt að fólk hafi skoðanir á þessu, við höfum gaman af því þegar sem flestir hafa skoðanir."
KSÍ gaf það út í desember að sambandið bæri engan kostnað af verkefninu. Jörundur segir að aðeins færra starfsfólk fari út til Mexíkó en þegar farið væri í keppnisleiki.
„Þetta er einn leikur og það er venjan í vináttuverkefninu að hafa aðeins færra í starfsliðinu. Það verður fullnægjandi, en færri en ef við værum að fara í tveggja leikja keppnisglugga."
Flogið verður til Chicago, þaðan til Mexíkó City og svo þaðan áfram á endastöð.
Kolbeinn Þórðarson er eini leikmaðurinn í hópnum sem spilar utan Íslands. Skoðað var hvort að leikmenn í Svíþjóð og Noregi kæmust í leikinn. „Niðurstaðan er sú að Kolli Þórðar er klár, það er frábært og verður gaman að sjá hann. Hann hefur staðið sig vel hjá Gautaborg og var frábær fyrir okkur í U21 landsliðinu á sínum tíma. Það verður gaman að sjá hvar hann stendur núna."
Jörundur gat ekki tjáð sig um hvort að kannað hefði verið hvort Lúkas J. Blöndal Petersson, aðalmarkvörður U21 landsliðsins sem spilar með varaliði Hoffenheim, gæti komið í leikinn.
Athugasemdir




