16-liða úrslit Meistaradeildar Evrópu hefjast í dag þegar Galatasaray tekur á móti Liverpool í Istanbúl.
Þar mætast Tyrklandsmeistararnir og Englandsmeistararnir, en Galatasaray lagði Juventus að velli í umspilinu til að komast í 16-liða úrslitin á meðan Liverpool fór beint áfram eftir gott gengi í deildarkeppninni.
Liverpool tapaði aðeins tveimur leikjum í deildarkeppninni og var annað tapið einmitt gegn Galatasaray í lok september.
Svo eru þrír stórleikir á dagskrá í kvöld og fer einn fram á enskri grundu þegar Newcastle United fær Spánarmeistara Barcelona í heimsókn. Liðin áttust einnig við í deildarkeppninni í september og þar höfðu Börsungar betur eftir jafnan leik í Newcastle.
Tottenham heimsækir Atlético Madrid í fyrsta keppnisleik sögunnar á milli þessara tveggja liða. Liðin mættust í æfingaleik sumarið 2016 og hafði Atlético betur með marki frá úrúgvæska varnarjaxlinum Diego Godín.
Að lokum á Atalanta heimaleik við Þýskalandsmeistara FC Bayern og er hér einnig verið að ræða um fyrstu innbyrðisviðureign í sögu félaganna.
Leikir kvöldsins
17:45 Galatasaray - Liverpool
20:00 Atalanta - Bayern
20:00 Atletico Madrid - Tottenham
20:00 Newcastle - Barcelona
Athugasemdir



