Alonso og Silva á blaði Chelsea - Wissa til sölu - Delap vill vera áfram
   þri 28. apríl 2026 21:33
Ívan Guðjón Baldursson
Benoný snéri loksins aftur á völlinn
Mynd: Fótbolti.net - Sæbjörn Steinke
Stockport County 1 - 2 Port Vale
0-1 Martin Sherif ('4)
0-2 Jordan Lawrence-Gabriel ('23)
1-2 Odin Bailey ('86)

Benoný Breki Andrésson er snúinn aftur til vallar eftir erfið meiðsli sem hafa haldið honum frá keppni stóran hluta tímabils.

Benoný kom inn af bekknum er Stockport County tapaði heimaleik gegn Port Vale í kvöld. Þetta var hans fyrsti keppnisleikur í þrjá mánuði.

Benoný var kominn með byrjunarliðssæti í liðinu áður en hann meiddist en hann er kominn aftur til baka fyrir mikilvægasta part leiktíðarinnar.

Það er aðeins ein umferð eftir af deildartímabilinu og nægir Stockport eitt stig til að tryggja sér umspilssæti.

Liðið leikur í League One, sem er þriðja efsta deild enska deildakerfisins, og er að keppast um sæti í Championship deildinni.
Slapp
banner
banner
banner