Alonso og Silva á blaði Chelsea - Wissa til sölu - Delap vill vera áfram
   þri 28. apríl 2026 23:16
Ívan Guðjón Baldursson
Rooney skilur ekkert í ummælum Harry Kane
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Wayne Rooney var í settinu hjá Amazon Prime þegar fyrri undanúrslitaleikur PSG gegn FC Bayern í Meistaradeildinni fór fram fyrr í kvöld.

PSG vann 5-4 eftir ótrúlegan fótboltaleik og hrósaði Harry Kane varnarlínu Bayern eftir tapið, þrátt fyrir að hafa fengið fimm mörk á sig.

   28.04.2026 21:59
Harry Kane: Varnarlínan var framúrskarandi


„Ég elska Harry Kane og ég held að allir geti séð það miðað við hvernig ég tala um hann, en það er ekki fræðilegur möguleiki að hann geti hrósað varnarmönnum liðsins eftir þessa frammistöðu," sagði Rooney eftir að hafa hlustað á ummælin frá Kane.

„Hann er kannski að segja þetta til að hughreysta liðsfélagana og gefa þeim sjálfstraust fyrir seinni leikinn, en staðreyndin er sú að varnarleikur beggja liða var mjög lélegur í kvöld. Harry myndi líka viðurkenna það ef hann væri að tala heiðarlega.

„Bæði lið eru með svo mikil gæði í sóknarleiknum sínum að varnarmennirnir gleyma stundum að verjast. Það þýðir að við áhorfendur fáum að njóta frábærra marka.

„Liðin spiluðu maður á mann en það er mjög erfitt gegn svona gæðamiklum sóknarmönnum. Um leið og þú tapar einbeitingunni í sekúndubrot þá ertu búinn að missa manninn framhjá þér."


Vincent Kompany, þjálfari Bayern og einn af betri miðvörðum í sögu ensku úrvalsdeildarinnar, sagðist hafa séð góðan varnarleik að leikslokum þrátt fyrir að níu mörk hafi verið skoruð.

   28.04.2026 22:45
Kompany vildi spila leikinn


„Eitt sem ég hef tekið eftir er að þú heyrir varla í varnarmönnum öskra á hvorn annan lengur. Í gamla daga heyrði maður í Jamie Carragher öskra á varnarmenn Liverpool til að stýra þeim og það virkaði. Mér fannst það pirrandi, en bakverðirnir skiluðu sér aftur í varnarlínuna. Þetta er ekki til lengur í fótboltanum og það er útaf breyttum áherslum í þjálfun."
Slapp
banner
banner