Alonso og Silva á blaði Chelsea - Wissa til sölu - Delap vill vera áfram
   þri 28. apríl 2026 21:24
Ívan Guðjón Baldursson
Taplaust lið Al-Hilal heldur í vonina
Mynd: EPA
Mynd: Al Hilal
Það fóru fjórir leikir fram í efstu deild í Sádi-Arabíu í dag og í kvöld þar sem lærlingar Simone Inzaghi í liði Al-Hilal nældu sér í lífsnauðsynleg þrjú stig.

Al-Hilal er eina taplausa liðið í deildinni en stjörnurnar eru þrátt fyrir það fimm stigum á eftir toppliði Al-Nassr þegar fimm umferðir eru eftir af deildartímabilinu.

Sergej Milinkovic-Savic skoraði eina mark leiksins eftir undirbúning frá Theo Hernández. Fyrrum Serie A stjörnurnar tengdu vel saman til að leggja fallbaráttulið Damac að velli.

Rúben Neves, Malcom og Karim Benzema voru einnig meðal byrjunarliðsmanna Al-Hilal í dag.

Í öðrum leikjum dagsins klúðraði Alexandre Lacazette vítaspyrnu í jafnteflisleik Neom SC gegn Al-Hazem. Saïd Benrahma skoraði eina mark Neom í jafnteflinu en bæði lið sigla lygnan sjó um miðja deild.

Joshua King, fyrrum leikmaður Bournemouth, setti þá tvennu í þægilegum sigri Al-Khaleej gegn botnliði Al-Najma og að lokum gerðu Josh Brownhill og félagar í liði Al-Shabab jafntefli við Al-Fateh.

Al-Hilal 1 - 0 Damac
1-0 Sergej Milinkovic-Savic ('18)

Al-Shabab 1 - 1 Al-Fateh

Neom 1 - 1 Al-Hazem

Al-Khaleej 3 - 1 Al-Najma

Slapp
banner
banner