Marquinhos, brasilískur fyrirliði PSG, svaraði spurningum frá Amazon Prime eftir ótrúlegan 5-4 sigur gegn FC Bayern í fyrri undanúrslitaleik liðanna í Meistaradeild Evrópu.
Einstaklingsgæði ýmissa stórstjarna skinu í risaslagnum en hægt er að setja spurningarmerki við varnarleik Marquinhos í minnst tveimur af fjórum mörkum gestanna í kvöld.
„Allir fótboltaunnendur elska að horfa á svona leiki, þetta var gjörsamlega klikkaður leikur á milli tveggja gæðamikilla liða sem spila svipaðan fótbolta. Bæði lið spila mjög aggressívt og af mikilli ákefð. Við erum rosalega ánægðir að hafa tekist að landa sigri," sagði Marquinhos, en PSG leiddi 5-2 eftir 60 mínútna leik.
„Við erum svekktir með mörkin sem við fengum á okkur en við erum með eins marks forystu fyrir seinni leikinn. Við verðum að mæta inn í seinni leikinn með rétt hugarfar.
„Ég býst við öðrum klikkuðum leik í næstu viku á milli tveggja liða sem vilja skora mörk. Við munum fara í seinni leikinn með sama hugarfar og karakter til að ná fram jákvæðum úrslitum. Við munum þurfa að leggja mikið á okkur gegn sterku liði. Þessi leikur kostaði okkur mikla orku og við þurfum á hvíld að halda."
Bæði PSG og FC Bayern geta teflt fram varaliðum sínum í deildarleikjum helgarinnar til að hvíla lykilmenn fyrir næsta einvígi. PSG er með sex stiga forystu þegar fjórar umferðir eru eftir í Frakklandi á meðan Bayern er búið að rúlla upp þýsku deildinni.
28.04.2026 21:59
Harry Kane: Varnarlínan var framúrskarandi




