Alonso og Silva á blaði Chelsea - Wissa til sölu - Delap vill vera áfram
   þri 28. apríl 2026 23:32
Ívan Guðjón Baldursson
Carragher ósammála Rooney: Engin stór mistök
Mynd: EPA
Fótboltasérfræðingurinn Jamie Carragher var ásamt Thierry Henry í settinu hjá CBS sem sýndi stórleik PSG gegn FC Bayern í beinni útsendingu fyrr í kvöld.

Wayne Rooney og fleiri fótboltaspekingar gagnrýndu barnalegan varnarleik liðanna í miklum markaleik þar sem lokatölur urðu 5-4, en Carragher er ekki sammála gagnrýninni.

„Vanalega þegar ég horfi á svona markamikinn leik þá segi ég að varnarleikurinn hafi ekki verið nægilega góður, en það er ekki málið í dag. Hver einasti sóknarmaður á vellinum átti skilið 8 eða 9 í einkunn fyrir sinn þátt. Allir sóknarmennirnir náðu yfirhöndinni í baráttunni gegn varnarmönnunum sem voru að dekka þá," sagði Carragher.

„Þegar ég hugsa aftur um mörkin þá voru engin stór, alvarleg mistök. Markmennirnir gerðu ekki stór mistök og varnarmennirnir ekki heldur. Mér fundust þetta bara vera frábær mörk. Það er enginn varnarmaður sem gerði sig að fífli, það voru bara svo mikil gæði í sóknarleiknum að það var nánast ómögulegt að koma í veg fyrir mörkin."

   28.04.2026 23:16
Rooney skilur ekkert í ummælum Harry Kane

Slapp
banner
banner
banner