Alonso og Silva á blaði Chelsea - Wissa til sölu - Delap vill vera áfram
   þri 28. apríl 2026 22:45
Ívan Guðjón Baldursson
Kompany vildi spila leikinn
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Vincent Kompany þjálfari FC Bayern svaraði spurningum eftir ótrúlegt tap í níu marka slag gegn Paris Saint-Germain í fyrri viðureign liðanna í undanúrslitum Meistaradeildar Evrópu.

Kompany er goðsagnakenndur varnarmaður eftir dvöl sína hjá Manchester City í ensku úrvalsdeildinni og eftir að hafa náð sögulegum árangri sem miðvörður belgíska landsliðsins.

Lærlingar Kompany fengu fimm mörk á sig í tapinu í kvöld en þjálfarinn greip í svipaða strengi og Harry Kane og hrósaði varnarlínunni.

   28.04.2026 21:59
Harry Kane: Varnarlínan var framúrskarandi


„Þetta var skemmtilegur leikur að horfa á en ég hefði persónulega frekar viljað vera á vellinum til að reyna að hjálpa til. Við þjáðumst mikið en vorum líka hættulegir í okkar sóknaraðgerðum. Vanalega er maður dottinn úr leik ef maður fær fimm mörk á sig á útivelli í útsláttarkeppni Meistaradeildarinnar, en við héldum í trúna og náðum að skora fjögur," sagði Kompany að leikslokum.

„Við komumst í svo mikið af góðum stöðum í leiknum að við misstum aldrei trúna og það skilaði sér að lokum. Þegar staðan var orðin 5-2 héldu strákarnir samt áfram að trúa að þeir gætu komið til baka. Við vorum svo hættulegir í okkar aðgerðum að við gátum ekki misst trúna."

Kompany var svo spurður út í varnarleik sinna manna sem var gagnrýndur af fótboltasérfræðingum.

„Við sáum mikið af góðum varnarleik í dag og það var lítill gæðamunur á liðunum. Leikmenn sýndu gæðin sín og þurftu ekki mörg tækifæri til að skora. Annað hvort fer maður af öllu afli í einvígin eða sleppir því alfarið, það er ekkert annað í boði gegn svona sterkum andstæðingum. Við fórum inn af öllu afli og þegar það brást þá refsuðu þeir okkur."

Seinni leikurinn fer fram í München í næstu viku.

„Það getur allt gerst í seinni leiknum. Við verðum á heimavelli með 75 þúsund manns að hvetja okkur áfram. Ég vil sjá meira frá strákunum."
Slapp
banner
banner