Bruno áfram á Old Trafford - Leao orðaður við Man Utd - Milan til í að skoða skipti
   fös 10. apríl 2026 22:17
Brynjar Ingi Erluson
Championship: Millwall aftur upp í annað sætið
Mynd: Millwall FC
West Brom 0 - 0 Millwall

WBA og Millwall gerðu markalaust jafntefli í ensku B-deildinni á The Hawthorns í kvöld.

Gestirnir frá Lundúnum voru betri aðilinn í fyrri hálfleiknum. Josh Coburn átti skot framhjá og þá setti Mihailo Ivanovic boltann í þverslá.

WBA átti ekki skot á markið fyrr en á 82. mínútu er Anthony Patterson varði frá Jayson Molumby af stuttu færi.

Heimamenn kláruðu leikinn á betri nótum en náðu ekki að taka öll stigin. WBA hefur nú farið í gegnum sjö leiki án þess að tapa undir stjórn James Morrison.

MIllwall-menn taka samt stigið sem fleytir þeim aftur upp í annað sætið, einu stigi fyrir ofan Ipswich sem á þrjá leiki til góða. WBA er á meðan fimm stigum fyrir ofan fallsæti.
Stöðutaflan England Championship - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Coventry 45 27 11 7 93 45 +48 92
2 Ipswich Town 45 22 15 8 77 47 +30 81
3 Millwall 45 23 11 11 62 49 +13 80
4 Middlesbrough 45 22 13 10 70 45 +25 79
5 Southampton 45 21 14 10 79 55 +24 77
6 Wrexham 45 19 13 13 67 63 +4 70
7 Hull City 45 20 10 15 68 65 +3 70
8 Derby County 45 20 9 16 66 57 +9 69
9 Norwich 45 19 8 18 62 54 +8 65
10 Birmingham 45 17 12 16 56 55 +1 63
11 Swansea 45 17 10 18 54 58 -4 61
12 Preston NE 45 15 15 15 54 59 -5 60
13 Bristol City 45 16 11 18 57 59 -2 59
14 QPR 45 16 10 19 61 70 -9 58
15 Sheffield Utd 45 17 6 22 64 65 -1 57
16 Watford 45 14 15 16 53 61 -8 57
17 Stoke City 45 15 10 20 51 54 -3 55
18 Portsmouth 45 14 12 19 48 63 -15 54
19 Charlton Athletic 45 13 14 18 43 55 -12 53
20 Blackburn 45 13 13 19 42 55 -13 52
21 West Brom 45 13 14 18 47 56 -9 51
22 Oxford United 45 11 14 20 45 57 -12 47
23 Leicester 45 11 16 18 57 68 -11 43
24 Sheff Wed 45 1 12 32 27 88 -61 -3
Slapp
banner
banner
banner