Marseille og Paris FC unnu góða sigra í 29. umferð frönsku deildarinnar í kvöld.
Parísarliðið, sem er í eigu Bernard Arnault, eins ríkasta manns heims, var með yfirhöndina frá upphafi leiks. Jonathan Ikone skoraði eftir fjórar mínútur er fyrirgjöf Moises Simon fór í gegnum allan teiginn og á fjær þar sem Ikone stakk sér fram fyrir varnarmanninn og skoraði.
Ciro Immobile bætti við öðru marki á 8. mínútu leiksins og gerði Ikone annað mark sitt þrettán mínútum síðar.
Bandaríkjamaðurinn Folarin Balogun minnkaði muninn á 36. mínútu áður en Luca Koleosho gulltryggði Paris sigurinn tuttugu mínútum fyrir leikslok.
Mónakó er í 5. sæti með 49 stig en Paris í 12. sæti með 35 stig.
Marseille vann botnlið Metz, 3-1, á heimavelli. Mason Greenwood lagði upp tvö mörk fyrir Pierre-Emerick Aubameyang og Igor Paixao áður en Giorgi Tsitaishvili minnkaði muninn, aðeins nokkrum sekúndum eftir mark Paixao.
Hamed Traore setti síðan þriðja markið í andlitið á Metz sem kom Marseille upp í 3. sæti deildarinnar með 52 stig á meðan Metz er í neðsta sæti með 15 stig.
Úrslit og markaskorarar:
Paris FC 4 - 1 Monaco
1-0 Jonathan Ikone ('4 )
2-0 Ciro Immobile ('8 )
3-0 Jonathan Ikone ('21 )
3-1 Folarin Balogun ('36 )
4-1 Luca Koleosho ('71 )
Marseille 3 - 1 Metz
1-0 Pierre Emerick Aubameyang ('13 )
2-0 Igor Paixao ('48 )
2-1 Giorgi Tsitaishvili ('49 )
3-1 Hamed Traore ('90 )


