Hörð barátta um Rogers - Juventus vill Alisonn - Olise orðaður við Real
   fös 10. apríl 2026 23:34
Brynjar Ingi Erluson
Lengjubikarinn: Tíu marka spennutryllir í Vesturbæ
FJölnismenn kláruðu riðilinn með fullt hús stiga
FJölnismenn kláruðu riðilinn með fullt hús stiga
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Kári skoraði fjögur í Akraneshöllinni
Kári skoraði fjögur í Akraneshöllinni
Mynd: Tómas Freyr Kristjánsson
Mikið markaflóð var í leikjum B-deildar Lengjubikars karla í kvöld og þá sérstaklega í Vesturbæ er Fjölnir vann magnaðan 6-4 sigur á KV og kláraði riðilinn með fullt hús stiga.

Kári bar sigur úr býtum gegn Kormáki/Hvöt, 4-2, í Akraneshöllinni.

Aðeins eitt mark var skorað í fyrri hálfleik en það gerði Tómas Týr Tómasson á 7. mínútu fyrir Kára en flóðgáttirnar opnuðust snemma í þeim síðari.

Pere Belmonte jafnaði metin á 49. mínútu en Jón Þór Finnbogason kom heimamönnum yfir á 56. mínútu. Finnbogi Laxdal Aðalgeirsson kom með þriðja markið á 72. mínútu áður en Belmonte minnkaði muninn átta mínútum síðar. Jón Þór gerði út um leikinn með öðru marki sínu á 83. mínútu og lokatölur því 4-2.

Í sama riðli unnu Fjölnismenn 6-4 sigur á KV í Vesturbæ.

Tvö mörk voru gerð á einni mínútu undir lok fyrri hálfleiks, en Birgir Þór Ólafsson skoraði fyrir Fjölni á 39. mínútu og mínútu síðar Eyþór jafnaði Eyþór Daði Kjartansson.

Það var svipuð uppskrift í Vesturbæ og í Akraneshöllinni, mörkin röðuðust inn í þeim síðari. Eyþór Daði kom KV yfir en Fjölnismenn svöruðu um hæl og komust í 3-2 og litu ekki til baka eftir það.

Aron Sölvi Róbertsson skoraði tvö mörk með stuttu millibili og gerði Orri Þórhallsson síðan sjötta mark gestanna. KV gerði tvö sárabótarmörk undir lokin. Eiður Snorri Bjarnason skoraði á 77. mínútu og þá gerði Óliver Dagur Thorlacius fjórða mark KV aðeins fimm mínútum síðar.

Fjölnir er búið að vinna riðilinn með fullt hús stiga eftir fimm leiki og 26 mörk skoruð. Kári er í öðru sæti með 9 stig og KV í þriðja sæti með 7 stig.

Árbær marði 2-1 sigur á Sindra í B-riðlinum. Abdul Bangura kom Sindra yfir á 20. mínútu en Árbær kom til baka og tryggði sér síðan sigur undir lokin með marki Olsi Tabaku.

Árbær hafnaði í næst neðsta sæti með 3 stig en Sindri án stiga í neðsta sæti.

Ýmir vann þá 4-3 sigur á Þrótti Vogum í C-riðli.

Þórður Carl Guðmundsson skoraði tvennu fyrir Ými sem er í 3. sæti með 7 stig á meðan Vogamenn höfnuðu í neðsta sæti með 2 stig.

Elliði hafði sigur gegn Úlfunum, 1-0, á Lambhagavellinum í D-riðli.

Viktor Máni Róbertsson gerði sigurmarkið á 11. mínútu.

Úlfarnir eru í 4. sæti með 1 stig en Elliði með 7 stig í öðru sæti riðilsins. Það er því nánast örugg að Hamar muni hafa sigur í riðlinum, nema það tapi stórt gegn Hömrunum á morgun.

Úrslit og markaskorarar:

A-riðill:

Kári 4 - 2 Kormákur/Hvöt
1-0 Tómas Týr Tómasson ('7 )
1-1 Pere Belmonte ('49 )
2-1 Jón Þór Finnbogason ('56 )
3-1 Finnbogi Laxdal Aðalgeirsson ('72 )
3-2 Pere Belmonte ('80 )
4-2 Jón Þór Finnbogason ('83 )

KV 4 - 6 Fjölnir
0-1 Birgir Þór Ólafsson ('39 )
1-1 Eyþór Daði Kjartansson ('40 )
2-1 Eyþór Daði Kjartansson ('55 )
2-2 Árni Steinn Sigursteinsson ('56 )
2-3 Þorkell Kári Jóhannsson ('64 )
2-4 Aron Sölvi Róbertsson ('68 )
2-5 Aron Sölvi Róbertsson ('71 )
2-6 Orri Þórhallsson ('73 )
3-6 Eiður Snorri Bjarnason ('77 )
4-6 Óliver Dagur Thorlacius ('82 )

B-riðill:

Sindri 1 - 2 Árbær
1-0 Abdul Bangura ('20 )
1-1 Brynjar Óli Axelsson ('30 )
1-2 Olsi Tabaku ('89 )

C-riðill:

Ýmir 4 - 3 Þróttur V.
1-0 Breki Ottósson ('3 )
1-1 Franz Bergmann Heimisson ('15 )
1-2 Birgir Halldórsson ('71 )
2-2 Þórður Carl Guðmundsson ('85 )
3-2 Björn Ingi Sigurðsson ('87 )
4-2 Þórður Carl Guðmundsson ('90 )
4-3 Eyþór Orri Ómarsson ('90 )

D-riðill:

Úlfarnir 0 - 1 Elliði
0-1 Viktor Máni Róbertsson ('11 )
Slapp
banner