Arsenal vill Brandt - Man Utd, Arsenal og Chelsea vilja Manzambi - Arsenal hefur ekki lengur áhuga á Tonali
banner
   mið 11. mars 2026 14:02
Elvar Geir Magnússon
Ráðherra útilokar þátttöku Írans á HM
Íranska landsliðið.
Íranska landsliðið.
Mynd: EPA
Ahmad Donyamali, íþróttamálaráðherra Írans, segir að þjóðin geti ekki tekið þátt í HM í sumar eftir að æðstiklerkur landsins, Ayatollah Ali Khamenei, féll í loftárásum Bandaríkjanna og Ísraels fyrir um tveimur vikum.

„Þar sem Bandaríkin hafa myrt leiðtoga okkur getum við ekki undir nokkrum kringumstæðum tekið þátt í HM. Börnin okkar eru ekki örugg," segir Donyamali.

Þessi ummæli koma í kjölfar þess að Gianni Infantino, forseti FIFA, sagði að Donald Trump hefði tjáð sér að íranska liðið væri velkomið á mótið þrátt fyrir stríðið í Miðausturlöndum.

Íran var fyrsta landsliðið sem vann sér inn þátttökurétt á HM. Íran á að vera í G-riðli með Belgíu, Egyptalandi og Nýja Sjálandi. Liðið á að spila tvo leiki í Los Angeles og einn í Seattle.
Athugasemdir
banner
banner