Donald Trump, Bandaríkjaforseti, hefur sagt að íranska fótboltalandsliðinu sé velkomið að taka þátt í HM í sumar en mótið fer að mestu leyti fram í Bandaríkjunum.
Þetta segir Gianni Infantino, forseti FIFA, sem segist hafa rætt við Trump varðandi stöðuna í Íran.
Stríð geysar í Miðausturlöndum og ekkert lát á árásum.
Þetta segir Gianni Infantino, forseti FIFA, sem segist hafa rætt við Trump varðandi stöðuna í Íran.
Stríð geysar í Miðausturlöndum og ekkert lát á árásum.
Íran var fyrsta landsliðið sem vann sér inn þátttökurétt á HM.
Íran á að vera í G-riðli með Belgíu, Egyptalandi og Nýja Sjálandi. Liðið á að spila tvo leiki í Los Angeles og einn í Seattle. Ef Bandaríkin og Íran enda í öðru sæti í sínum riðlum gætu liðin mæst í útsláttarkeppninni.
Athugasemdir



