Guðlaugur Victor Pálsson var í byrjunarliði Horsens þegar liðið gerði markalaust jafntefli gegn Hillerod í næst efstu deild í Danmörku. Horsens er í 6. sæti með 34 stig.
Ísak Snær Þorvaldsson var í byrjunarliði Lyngby sem er í harðri baráttu um að komast upp. Liðið vann dramatískan sigur á Kolding. Lyngby komst yfir en Kolding jafnaði metin undir lokin áður en Lyngby skoraði tvö mörk í uppbótatíma og vann 3-1. Ari Leifsson var ónotaður varamaður hjá Kolding.
Lyngby er á toppnum með 45 stig, fjórum stigum á undan Esbjerg og fimm stigum á undan Hvidovre en tvö efstu liðin tryggja sér sæti í efstu deild.

Ólafur Dan Hjaltason kom inn á í fyrri hálfleik þegar Aarhus Fremad vann B.93 3-1 í neðri hlutanum. Fremad er í 8. sæti með 30 stig, sex stigum frá fallsæti þegar átta umferðir eru eftir.
Atli Barkarson var í byrjunarliði Sogndal sem tapaði 3-0 gegn Lyn í norsku B-deildinni. Sogndal er án stiga eftir tvær umferðir. Hinrik Harðarson var ónotaður varamaður í 3-1 sigri Odd gegn Sandnes en Odd er með fullt hús stiga á toppnum.
Brynjar Ingi Bjarnason var í byrjunarliði Greuther Furth sem gerði markalaust jafntefli gegn Preussen Munster í þýsku B-deildinni. Greuther Furth er í næst neðsta sæti með 30 stig.