Tímabilið er ekki að fara vel af stað hjá Aftureldingu en liðið eru núna með aðeins eitt stig eftir tvo heimaleiki. Völsungur kom í heimsókn og endaði leikurinn 0-0 í frekar bragðdaufum leik.
En góðu fréttirnar eru þær að vörnin hélt hreinu eftir að hafa fengið á sig 7 mörk í fyrstu umferð á móti ÍR. Er það ekki alla veganna eitthvað?
" Jú það er það jákvæða sem við tökum úr þessu í dag. Við vorum flottir varnarlega í dag, þeir ( Völsungur ) sköpuðu sér lítið af færum. Ég er hins vegar svekktur að skora ekki og skapa ekki fleiri færi. Völsungur varðist vel og ég tek það ekkert af þeim", sagði Magnús Már að leikslokum.

Lestu um leikinn: Afturelding 0 - 0 Völsungur
Sóknarleikur Aftureldingar var frekar bitlaus í leiknum og þrátt fyrir að komast oft í góðar stöður skapaði liðið sér fá færi heilt yfir.
"Við vorum ekki nógu skarpir í dag til þess að brjóta þá niður sem er ólíkt okkur. Það vantaði meiri hraða og gæði í okkar sóknarleik sem hefur verið í lagi undanfarnar vikur."
Er Maggi ósammála því að Völsungur er lakasta liðið í deildinni samkvæmt öllum spám?
"Þetta er bara hörkudeild (Lengjudeildin) og allir leikir eru erfiðir. Ég held að þeir séu búnir að fá fullt af nýjum leikmönnum undanfarna daga. Ef menn rýna í það þá held ég að þeir séu með hörkuhóp."
Athygli vakti að varnarjaxlinn Axel Óskar Andrésson þurfti að fara út af á 90. mínútu þegar hann fékk eitthvað aftan í læri. Hvað getur Maggi sagt okkur um það?
"Hann (Axel) er frekar stífur en tognaður, ég vona að það verði ekki margir dagar í að hann verði klár. Það er vika í næsta leik og ég held að hann geti vel náð þeim leik."
Viðtalið í heild má sjá í spilaranum hér fyrir ofan.