Leikur Aftureldingar og Völsungs á sjálfum verkalýðsdeginum verður nú seint þekktur fyrir skemmtanagildi sitt. Þvert á móti er þetta leikur sem mun gleymast fyrir kvöldmat.
Elfar Árni Aðalsteinsson spilandi þjálfari liðsins hafði þetta að segja að leikslokum:
"Við fórum í þennan leik bara mjög þéttir og ætluðum að passa markið okkar þar sem þeir (Afturelding) eru mjög öflugir fram á við. Ég held að þeir hafi ekki skapað sér neitt af alvöru færum hér í dag."
Elfar Árni Aðalsteinsson spilandi þjálfari liðsins hafði þetta að segja að leikslokum:
"Við fórum í þennan leik bara mjög þéttir og ætluðum að passa markið okkar þar sem þeir (Afturelding) eru mjög öflugir fram á við. Ég held að þeir hafi ekki skapað sér neitt af alvöru færum hér í dag."
Lestu um leikinn: Afturelding 0 - 0 Völsungur
Annan leikinn í röð var þekkt nafn óvænt á skýrslu liðsins fyrir leik. Í fyrstu umferð var það Hallgrímur Mar Steingrímsson leikmaður KA en í dag var það Jóhann Kristinn Gunnarsson þjálfari kvennaliðs Þróttar. Hver er ástæðan fyrir því?
"Ég var í banni í síðustu umferð þannig að við vorum bara að reyna að fá fleiri menn á bekkinn. Svo hefur Jói þjálfað bæði mig og Bjarka í mörg ár. Við erum að reyna að fá reynslu frá góðum þjálfurum."
Hinn 18 ára gamli Tómas Bjarni Baldursson fékk tækifæri í byrjunarliðinu í dag eftir að hafa komið inn á sem varamaður á móti Leikni í fyrstu umferð og skoraði. Hvað fannst Elfari um frammistöðu Tómasar hér í dag?
"Mér fannst hann standa sig mjög vel. Hann var mjög duglegur í varnarfærslunum og ógnaði þegar við fengum boltann. Ég var mjög ánægður með Tómas í dag."
En hvernig líst Elfari á Modoumatarr sem kom til liðsins frá Svíðþjóð rétt fyrir tímabilið?
"Hann er mjög duglegur og flottur karakter, passar vel inn í okkar hóp. Mér fannst allir skila sínu og allir að berjast og ég er mjög sáttur með liðsframmistöðuna í dag".
Völsungur er með tvö stig úr fyrstu tveimur leikjunum, er það ekki bara ásættanlegt?
"Jú svona, það hefði nú alveg verið gaman að vera með fjögur stig. Við hefðum geta skorað í lokin í síðasta leik (gegn Leikni) og svo fannst mér við vera rændir augljósri vítaspyrnu í dag."
Viðtalið í heild má sjá í spilaranum hér fyrir ofan.






















