Fyrsta skotmark De Zerbi - Man Utd fylgist með miðverði Benfica - Kofane til Arsenal - Hvað verður um Kounde og Dumfries?
Besta spjallið - Horfðu á upphitunarþáttinn í mynd
Ian Jeffs: Veit ekki hverjar geta mætt á morgun
Guðni Eiríks: Sagði að ef hann myndi ekki taka ákvörðunina þá myndi ég gera það fyrir hann
Álitið - Hver verður efnilegastur
Álitið - Hverjir verða meistarar og hver verður bestur?
Óskar Hrafn hefur ekki tíma fyrir gæðastjórann
Aron Einar: Það hefur aldrei vantað upp á hjá honum
Arnar vonsvikinn: Rosalega mikill klaufagangur
Gylfi: Jákvætt að þetta gerist ekki í undankeppni
Ísak Bergmann: Langt síðan við höfum farið ósigraðir úr glugga
Jón Dagur: Verður eins og Covid leikur
Ellefu dagar í Bestu - Gæðastjórinn útskýrir xF
Steini: Hún er á mun betri stað en fyrir hálfu ári
Davíð Örvar: Við gefum öllum liðum leik
Maggi: Hann átti frábæran leik í dag
41 árs Birkir Már: Vonandi í síðasta skipti sem ég næ ekki 90 mínútum
Valdimar Þór: Skil dómarann að gefa mér gult
Daniel Badu: Þessi leikur sýndi okkur að við eigum enn eitthvað í land
Sölvi Geir um óvænta innkomu Sveins Margeirs: Þetta er okkar leikmaður og við pössum upp á þá
„Þurfum að læra sem lið að loka þessum leikjum"
   fös 14. ágúst 2015 21:31
Arnar Daði Arnarsson
Duffield: Hef ekki hugmynd hvað markmaðurinn var að gera
Anton Mark Duffield stjórnaði liði Fjarðabyggðar í kvöld.
Anton Mark Duffield stjórnaði liði Fjarðabyggðar í kvöld.
Mynd: Fótbolti.net - Ómar Vilhelmsson
Anton Mark Duffield, aðstoðarþjálfari Fjarðabyggðar stjórnaði liðinu í 3-1 tapi gegn Haukum í kvöld, vegna veikinda Brynjars Gestssonar þjálfara liðsins.

Mark þurfti að sætta sig við tapið og var allt annað en ánægður með spilamennsku sinna manna í kvöld, sem var ekki upp á marga fiska.

Lestu um leikinn: Haukar 3 -  1 Fjarðabyggð

„Við eigum ekki meira skilið þegar við gefum svona mörk eins í kvöld," sagði Duffield sem var óánægður með öll þrjú mörkin sem liðið fékk á sig í kvöld.

„Fyrsta markið er klaufaskapur, það er brotið á okkar manni í kjölfarið á vítinu sem þeir fá í öðru markinu og svo veit ég ekki hvað markmaðurinn var að gera í þriðja markinu. Því miður, hef ég ekki hugmynd hvað hann var að gera."

„Ég er mjög ósáttur með liðið í fyrri hálfleik. Við vorum algjörlega á hælunum og ég held að við getum gert miklu betur. Ef menn ætla að vera í þessu þá verða þeir að fara hysja upp um sig. Það er alveg klárt mál."

Það var athyglisvert að fylgjast með Kile Kennedy markmanni Fjarðabyggðar sem var í tómu rugli síðustu mínúturnar eftir að hann fékk á sig vítið og gult spjald í kjölfarið.

Hans fjórða gula spjald og fer því í bann. Hann fékk þá hugdellu hvort hann ætti ekki bara að næla sér í rautt spjald og missa þar af leiðandi af næsta leik liðsins á þriðjudaginn gegn BÍ/Bolungarvík eða hvort hann ætti að fara í bann vegna fjögurra gula spjalda og missa af leiknum gegn Selfossi í þar næstu umferð.

„Við vorum ekki að íhuga það. Honum datt það í hug en það var svæft í fæðingu. Við tökum ekki þátt í svoleiðis vitleysu. Það er alveg á hreinu," sagði Mark Duffield sem var í stöðugu sambandi við Brynjar Gestsson í símann, eða það er að segja, aðstoðarmenn hans á bekknum.

„Við töluðum við Brynjar Gests. allan leikinn, því hann horfði á leikinn á netinu. Við vorum í miklu sambandi við Brynjar. Það hafði ekkert með þessi spjöld að gera eða neitt svoleiðis," sagði Anton Mark Duffield í samtali við Fótbolta.net.

Viðtalið í heild sinni er hægt að sjá í sjónvarpinu hér að ofan.
Slapp
banner