Arsenal á höttunum eftir Williams - Liverpool og Manchester-liðin hafa líka áhuga - Juventus í viðræðum við Aston Villa
Rokkar um stöður í Noregi - „Alltaf stemning frammi“
HM Álitið: Hvaða lið dettur óvænt út í riðlinum?
Gummi Kri: Skil að þeir séu svekktir
Gaui Lýðs: Einn leikur á þeirri vegferð sem við erum á
Maggi: Geggjað að það sé Megavika núna
Gabríel Aron: Smá skref niður til þess að taka tvö upp
Megaviku Birkir þakklátur: Örugglega svona tuttugu ár síðan
Jökull: Algjörlega galið að eiga þá umræðu hér
HM Álitið: Hvað kemur mest á óvart?
HM Álitið: Hvaða frægi verður mest áberandi í stúkunni?
Albert: Þetta er auðvitað geitin í leiknum
Jón Dagur: Hann braut okkur alveg með fyrstu sendingunni
Orri: Hann byrjaði að skapa mikinn usla á milli línanna
Fyrsta landsliðsmarkið komið: „Það var bara ekkert annað hægt en að slútta þessu“
Glódís hreinskilin: Veit ekki hvernig þetta umspil virkar
Diljá Ýr: Ennþá með sama markmið
HM Álitið: Hvaða leikmaður springur út?
HM Álitið: Hverjir verða spútnik liðið?
„Kom mér lítið á óvart að hafa fengið þetta tækifæri“
HM Álitið: Hvaða lið vinnur mótið?
   sun 29. mars 2026 17:49
Stefán Marteinn Ólafsson
Valdimar Þór: Skil dómarann að gefa mér gult
Valdimar Þór Ingimundarson leikmaður Víkinga
Valdimar Þór Ingimundarson leikmaður Víkinga
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Víkingar eru Meistarar Meistaranna eftir öflugan og öruggan 4-0 sigur á Vestra í Víkinni í dag. Leikur sem var aldrei í neinni hættu. 


Lestu um leikinn: Víkingur R. 4 -  0 Vestri

„Finn leikur, góður fyrri hálfleiku, droppuðum aðeins í seinni en unnum 4-0 þannig við erum sáttir" sagði Valdimar Þór Ingimundarson leikmaður Víkinga eftir sigurinn í dag en Valdimar Þór skoraði einmitt þriðja mark Víkinga í dag.

Það voru ekki margir sem áttu von á því að Vestri myndi vera einhver fyrirstaða fyrir Víkinga í dag.

„Við bara undirbjuggum okkur eins og fyrir alla leiki en 4-0 á heimavelli og sigur er bara fínt fyrir mig" 

Valdimar Þór átti frábæran sprett í fyrri hálfleiknum þar sem hann sveif í gegnum hvern leikmann Vestra á fætur öðrum áður en hann var svo tekinn niður af Ibrahima Balde sem hlaut að lokum gult spjald en það voru þó fleirri sem reyndu að sparka hann niður.

„Ég veit það ekki, mér finnst allt í lagi ef það eru þrír sem brjóta að það sé allt í lagi að gefa allavega tveim gult en ég hef annars litla skoðun á því" 

Valdimar Þór fékk sjálfur að líta gula spjaldið seinna í leiknum þegar hann féll inn í teig þegar hann var sloppinn einn í gegn í baráttunni við Marvin Darra í marki Vestra.  Dómari leiksins reif upp gula spjaldið á Valdimar Þór fyrir dýfu.

„Hann kemur ekkert við mig. Þetta var aldrei víti, ég snerti hann þarna og er að teygja mig í boltann og svo eiginlega læt ég mig bara detta en ég er samt ekkert að biðja um víti en ég skil hins vegar dómarann að gefa mér gult en mér fannst þetta samt smá eða jújú bara góður dómur"  sagði Valdimar Þór Ingimundarson

Nánar er rætt við Valdimar Þór Ingimundarson í spilarnum hér fyrir ofan.


Meistarakeppni karla
Lið L U J T Mörk mun Stig
Slapp
banner
banner