Mourinho orðaður við Real Madrid - Curtis Jones til Aston Villa?
Linda Líf: Það trylltist allt
Glódís: Ótrúlega stolt að spila fyrir Ísland
Emilía Kiær: Kannski hefði hann farið inn á öðrum degi
Ída Marín: Þessi í markinu var ótrúlega pirrandi
Sveindís: Þetta er ekki bölvun - stundum vantar bara heppnina
„Drullusvekkjandi - áttum skilið meira en núll stig“
Sterkastur í 2. umferð - Búið að vera langt ferli
Jói Kalli: Leikskipulagið gekk ekki alveg upp
Jökull orðinn helvíti þreyttur á að ákvarðanir fari gegn Örvari
Birnir Snær: Þegar við erum 'on it' þá er ekkert lið sem stoppar okkur
Gísli Eyjólfs: Þegar línan hjá dómaranum er svona þá myndast auðvitað hiti
Haraldur Freyr: Þetta var barnalegur varnarleikur hjá okkur
Valgeir: Flökkuðu einhver orð á milli okkar og því fór sem fór
Ólafur Ingi: Pínu heppnir að hanga á þessu
Rúnar Kristins: Hann er nánast eins og nýr leikmaður
Lúkas Logi: Vinnum sem lið og klárum leikinn saman
Haddi: Veit ekki hvort þetta sé "fair play" eða ekki
Segir þriðja liðið það slakasta á vellinum - „Strákur alinn upp í Kópavogi og skilur ekki norðlenskuna“
Sölvi Geir: Áttum inni víti
Alexsandar Linta: Þegar maður tapar er maður aldrei viss
   sun 29. mars 2026 22:41
Jóhann Þór Hólmgrímsson
41 árs Birkir Már: Vonandi í síðasta skipti sem ég næ ekki 90 mínútum
Mynd: Afturelding
Afturelding er komið áfram í 32-liða úrslit Mjólkurbikarsins eftir 3-2 sigur á ÍR í kvöld.

Afturelding náði þriggja marka forystu áður en ÍR skoraði síðan tvö mörk en Afturelding náði að sigla sigrinum heim. Hinn 41 árs gamli Birkir Már Sævarsson skrifaði óvænt undir samning við Aftureldingu á dögunum. Hann var í byrjunarliðinu í kvöld og lagði upp mark. Fótbolti.net ræddi við hann eftir leikinn.

Lestu um leikinn: ÍR 2 -  3 Afturelding

„Þetta var góður sigur þótt hann hafi verið full tæpur í lokin. Flott að fá sigurinn, það er það eina sem skiptir máli í bikarnum," sagði Birkir Már.

Hann var tekinn af velli undir lok leiksins.

„Ég er búinn að reyna koma mér í stand fyrir leik og náði 80 mínútum. Það er vonandi í síðasta skipti sem ég næ ekki 90 mínútum," sagði Birkir Már.

Birkir Már talaði um hversu spennandi það er að spila með bróður Aroni Elí Sævarssyni og stefnir á að hjálpa liðinu að berjast um að komast aftur upp í deild þeirra bestu.


Slapp
banner
banner