Mourinho orðaður við Real Madrid - Curtis Jones til Aston Villa?
Linda Líf: Það trylltist allt
Glódís: Ótrúlega stolt að spila fyrir Ísland
Emilía Kiær: Kannski hefði hann farið inn á öðrum degi
Ída Marín: Þessi í markinu var ótrúlega pirrandi
Sveindís: Þetta er ekki bölvun - stundum vantar bara heppnina
„Drullusvekkjandi - áttum skilið meira en núll stig“
Sterkastur í 2. umferð - Búið að vera langt ferli
Jói Kalli: Leikskipulagið gekk ekki alveg upp
Jökull orðinn helvíti þreyttur á að ákvarðanir fari gegn Örvari
Birnir Snær: Þegar við erum 'on it' þá er ekkert lið sem stoppar okkur
Gísli Eyjólfs: Þegar línan hjá dómaranum er svona þá myndast auðvitað hiti
Haraldur Freyr: Þetta var barnalegur varnarleikur hjá okkur
Valgeir: Flökkuðu einhver orð á milli okkar og því fór sem fór
Ólafur Ingi: Pínu heppnir að hanga á þessu
Rúnar Kristins: Hann er nánast eins og nýr leikmaður
Lúkas Logi: Vinnum sem lið og klárum leikinn saman
Haddi: Veit ekki hvort þetta sé "fair play" eða ekki
Segir þriðja liðið það slakasta á vellinum - „Strákur alinn upp í Kópavogi og skilur ekki norðlenskuna“
Sölvi Geir: Áttum inni víti
Alexsandar Linta: Þegar maður tapar er maður aldrei viss
   sun 29. mars 2026 23:58
Hafþór Örn Laursen
Davíð Örvar: Við gefum öllum liðum leik
Davíð Örvar Ólafsson
Davíð Örvar Ólafsson
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
ÍR töpuðu 2-3 gegn Aftureldingu í 64-liða úrslitum Mjólkurbikarsins í kvöld. Fréttaritari Fótbolta.net náði á Davíð Örvar, aðstoðarþjálfara ÍR eftir leikinn.

Lestu um leikinn: ÍR 2 -  3 Afturelding

„Þetta er svekkjandi og ömurlegt að tapa. Úr því sem komið var
þá vorum við að rembast við að reyna jafna þennan leik, en við vorum bara ekki nógu góðir í dag.''

„Við vorum ekki með fyrsta korterið og þeir voru miklu meira með boltann en við fengum fína sénsa í seinni part fyrri hálfleiks. Við breyttum aðeins í seinni hálfleik og settum fleiri menn fram og fækkum í vörninni og úr því verða tvö mörk, en það hefði verið gaman að koma þessu í framlengingu.''

Afturelding komust 0-3 yfir en ÍR-ingar náðu aðeins að klóra í bakkann og minnkuðu muninn í 2-3 .

„Ég var vongóður en við vorum kannski aðeins of mikið að flýta okkur eftir að við skoruðum seinna markið okkar þar sem það voru rúmar 10 mínútur eftir.''

Davíð var spurður út í undirbúninginn í v etur.

„Undirbúningurinn hefur verið fínn, höfum náð í fín úrslit en ekki náð að spila heilan leik almennilega eins og við Jóhann Birnir viljum sjá. Við erum ánægðir með hópinn og höfum æft vel.''

Hann var einnig spurður út í markmið ÍR-inga í ár.

„Markmiðið er náttúrulega að reyna vinna alla leiki, en það er auðvitað ekki hægt. Við viljum reyna komast í topp 5 og ná umspilssæti sem við náðum ekki í fyrra. Það er fullt af góðum liðum í þessari deild en við gefum öllum liðum leik.''
Slapp
banner
banner
banner