Fyrsta skotmark De Zerbi - Man Utd fylgist með miðverði Benfica - Kofane til Arsenal - Hvað verður um Kounde og Dumfries?
Besta spjallið - Horfðu á upphitunarþáttinn í mynd
Ian Jeffs: Veit ekki hverjar geta mætt á morgun
Guðni Eiríks: Sagði að ef hann myndi ekki taka ákvörðunina þá myndi ég gera það fyrir hann
Álitið - Hver verður efnilegastur
Álitið - Hverjir verða meistarar og hver verður bestur?
Óskar Hrafn hefur ekki tíma fyrir gæðastjórann
Aron Einar: Það hefur aldrei vantað upp á hjá honum
Arnar vonsvikinn: Rosalega mikill klaufagangur
Gylfi: Jákvætt að þetta gerist ekki í undankeppni
Ísak Bergmann: Langt síðan við höfum farið ósigraðir úr glugga
Jón Dagur: Verður eins og Covid leikur
Ellefu dagar í Bestu - Gæðastjórinn útskýrir xF
Steini: Hún er á mun betri stað en fyrir hálfu ári
Davíð Örvar: Við gefum öllum liðum leik
Maggi: Hann átti frábæran leik í dag
41 árs Birkir Már: Vonandi í síðasta skipti sem ég næ ekki 90 mínútum
Valdimar Þór: Skil dómarann að gefa mér gult
Daniel Badu: Þessi leikur sýndi okkur að við eigum enn eitthvað í land
Sölvi Geir um óvænta innkomu Sveins Margeirs: Þetta er okkar leikmaður og við pössum upp á þá
„Þurfum að læra sem lið að loka þessum leikjum"
   mán 17. ágúst 2015 20:35
Alexander Freyr Tamimi
Gulli Jóns: Fannst við jafnvel mega stela þessu
Gulli var svekktur.
Gulli var svekktur.
Mynd: Fótbolti.net - Ingunn Hallgrímsdóttir
Gunnlaugur Jónsson, þjálfari ÍA, var skiljanlega svekktur eftir 3-1 tap sinna manna gegn Breiðabliki í Pepsi-deildinni á Kópavogsvelli í kvöld.

Þrátt fyrir að Blikar hafi vaðið í færum og komist í 1-0 tókst Skagamönnum að jafna með frábæru marki frá Alberti Hafsteinssyni þegar einungis sjö mínútur voru eftir. Tvö mörk frá Jonathan Glenn til viðbótar við það fyrsta fullkomnuðu hins vegar sigur Blika.

Lestu um leikinn: Breiðablik 3 -  1 ÍA

„Þetta var djöfull svekkjandi að fá þetta í fésið á okkur, 2-1 undir lok leiksins. Ég var gríðarlega ánægður með hvernig við brugðumst við, við þurftum reyndar að lenda undir til að vakna dálítið til leiks. Við vorum gríðarlega hættulegir í lok leiksins og fram að þessu marki," sagði Gunnlaugur eftir leikinn.

„Vissulega fengu þeir mörg færi í fyrri hálfleik og við sluppum með skrekkinn að vera bara með 0-0 í hálfleik. En við áttum að halda þetta út og ná í það minnsta í jafntefli."

„Ég var ósáttur með hvernig við komum inn í seinni hálfleikinn, mér fannst vera sama slen í mönnum eins og í fyrri hálfleik. En við svöruðum því vel og skoruðum frábært mark og áttum að halda þetta út. Fannst við jafnvel mega stela þessu."

Slapp
banner
banner