Man Utd ætlar að reka Ten Hag - Hver tekur við? - Tuchel hefur áhuga á starfinu
   fös 19. janúar 2024 13:00
Elvar Geir Magnússon
Reading hefur ekki efni á að hita upp æfingavöllinn eða borga mat fyrir leikmenn
Madejski leikvangurinn, heimavöllur Reading.
Madejski leikvangurinn, heimavöllur Reading.
Mynd: Getty Images
Enska C-deildarfélagið Reading er í miklum fjárhagsvandræðum. Reading hefur haft miklar Íslandstengingar í gegnum árin og stór nöfn í íslenska boltanum spilað fyrir félagið.

En staðan er ansi svört hjá félaginu í dag og hefur stjóri liðsins, Ruben Selles, þurft að breyta æfingaáætlunum sínum til að spara kostnað við upphitun á æfingavellinum.

Félagið hefur þurft að taka erfiðar ákvarðanir í niðurskurði vegna þungra fjárhagsstöðu, sagt upp fólki og þá skuldar það milljónir punda.

Gagnafyrirtækið StatsPerform hefur lokað á Reading þar sem félagið skuldar því greiðslur fyrir tölfræðiupplýsingar og veitingafyrirtækið Levy er hætt að sjá leikmönnum fyrir máltíðum á æfingasvæðinu.

Ensku deildasamtökin hafa kallað eftir því að eigandinn, kínverski viðskiptamaðurinn Dai Yongge, komi inn með fjármagn eða selji félagið eftir að hafa sýnt „augljóst tillitsleysi“ hvað varðar skyldur hans gagnvart því.

Í yfirlýsingu frá Reading í vikunni kemur fram að hann sé að vinna í því að reyna að selja félagið. Reading er í 21. sæti af 24 liðum í C-deildinni.
Stöðutaflan England 1. deild - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Portsmouth 46 28 13 5 78 41 +37 97
2 Derby County 46 28 8 10 78 37 +41 92
3 Bolton 46 25 12 9 86 51 +35 87
4 Peterboro 46 25 9 12 89 61 +28 84
5 Oxford United 46 22 11 13 79 56 +23 77
6 Barnsley 46 21 13 12 82 64 +18 76
6 Cambridge City 0 0 0 0 0 0 0 0
7 Lincoln City 46 20 14 12 65 40 +25 74
8 Blackpool 46 21 10 15 65 48 +17 73
9 Stevenage 46 19 14 13 57 46 +11 71
10 Wycombe 46 17 14 15 60 55 +5 65
11 Leyton Orient 46 18 11 17 53 55 -2 65
12 Wigan 46 20 10 16 63 56 +7 62
13 Exeter 46 17 10 19 46 61 -15 61
14 Northampton 46 17 9 20 57 66 -9 60
15 Bristol R. 46 16 9 21 52 68 -16 57
16 Charlton Athletic 46 11 20 15 64 65 -1 53
17 Reading 46 16 11 19 68 70 -2 53
18 Cambridge United 46 12 12 22 39 61 -22 48
19 Shrewsbury 46 13 9 24 35 67 -32 48
20 Burton 46 12 10 24 39 67 -28 46
21 Cheltenham Town 46 12 8 26 41 65 -24 44
22 Fleetwood Town 46 10 13 23 49 72 -23 43
23 Port Vale 46 10 11 25 41 74 -33 41
24 Carlisle 46 7 9 30 41 81 -40 30
24 Forest Green 46 6 9 31 31 89 -58 27
Athugasemdir
banner
banner