Fyrsta skotmark De Zerbi - Man Utd fylgist með miðverði Benfica - Kofane til Arsenal - Hvað verður um Kounde og Dumfries?
Besta spjallið - Horfðu á upphitunarþáttinn í mynd
Ian Jeffs: Veit ekki hverjar geta mætt á morgun
Guðni Eiríks: Sagði að ef hann myndi ekki taka ákvörðunina þá myndi ég gera það fyrir hann
Álitið - Hver verður efnilegastur
Álitið - Hverjir verða meistarar og hver verður bestur?
Óskar Hrafn hefur ekki tíma fyrir gæðastjórann
Aron Einar: Það hefur aldrei vantað upp á hjá honum
Arnar vonsvikinn: Rosalega mikill klaufagangur
Gylfi: Jákvætt að þetta gerist ekki í undankeppni
Ísak Bergmann: Langt síðan við höfum farið ósigraðir úr glugga
Jón Dagur: Verður eins og Covid leikur
Ellefu dagar í Bestu - Gæðastjórinn útskýrir xF
Steini: Hún er á mun betri stað en fyrir hálfu ári
Davíð Örvar: Við gefum öllum liðum leik
Maggi: Hann átti frábæran leik í dag
41 árs Birkir Már: Vonandi í síðasta skipti sem ég næ ekki 90 mínútum
Valdimar Þór: Skil dómarann að gefa mér gult
Daniel Badu: Þessi leikur sýndi okkur að við eigum enn eitthvað í land
Sölvi Geir um óvænta innkomu Sveins Margeirs: Þetta er okkar leikmaður og við pössum upp á þá
„Þurfum að læra sem lið að loka þessum leikjum"
banner
   fim 20. ágúst 2015 20:41
Jóhann Ingi Hafþórsson
Fjölnisvelli
Aron Sig: Sáu það allir að þetta var ekki skot
Aron Sigurðarson var á skotskónum í dag.
Aron Sigurðarson var á skotskónum í dag.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Aron Sigurðarson, leikmaður Fjölnis var skiljanlega svekktur með að markið hans réði ekki úrslitum er liðið gerði 1-1 jafntefli við Val í kvöld.

Fjölnisliðið var töluvert betra í leiknum en Einar Karl Ingvarsson skoraði undir lokin og tryggðu Valsmönnum stig.

Lestu um leikinn: Fjölnir 1 -  1 Valur

„Jú, ég er mjög svekktur, við spiluðum vel. Í fyrri hálfleiknum þá stjórnuðum við leiknum, komumst yfir, það var lélegt að ná ekki að halda þetta út."

Aron viðurkennir að Fjölnismenn hafi verið klaufar.

„Já mér fannst það, við fengum betri færi en þeir en við vorum klaufar að nýta þau ekki. Einar Karl er flottur, þetta var flott mark hjá honum."

Mark Arons var fyrirgjöf sem fór yfir Ingvar Kale í markinu og í stöngina og inn. Aron reyndi ekki einu sinni að halda því fram að hann hafi reynt að skjóta.

„Gummi Karl gefur hann á mig, ég leit ekki einu sinni inn í, ég bjóst bara við að Gunnar Már væri inn í, ég ætlaði að setja hann á pönnuna á honum. Það var mjög ljúft að sjá hann inni."

„Nei, það sáu allir sem sáu þetta að þetta var ekki skot."

Viðtalið má sjá í heild sinni hér að ofan.
Slapp
banner