Þremur fyrstu leikjum dagsins er lokið í ensku úrvalsdeildinni þar sem Brentford nældi sér í dýrmæt stig á heimavelli gegn fallbaráttuliði West Ham.
Liðin mættust í gríðarlega mikilvægum leik og ríkti þokkalegt jafnræði með liðunum í skemmtilegum fyrri hálfleik, en heimamenn leiddu í leikhlé eftir að Konstantinos Mavropanos var í aðalhlutverki.
Hann var óheppinn að skora sjálfsmark af stuttu færi þegar hann ætlaði að reyna að bjarga í hornspyrnu en skaut boltanum þess í stað í slána og inn. Michael Kayode var við það að skora þegar Mavropanos rétt náði að setja tærnar sínar framfyrir Ítalann.
Grikkinn hélt hann hefði bætt upp fyrir sjálfsmarkið þegar hann skoraði með skalla eftir aukaspyrnu, en eftir athugun í VAR-herberginu kom í ljós að hann var rangstæður.
Staðan var 1-0 í leikhlé og tvöfölduðu heimamenn forystuna í upphafi síðari hálfleiks þegar Malick Diouf braut afar klaufalega af sér innan vítateigs og skoraði Igor Thiago af punktinum.
Þetta mark virtist gera út af við trúna í liði Hamranna sem áttu engin svör og urðu lokatölur 3-0 eftir að Mikkel Damsgaard innsiglaði sigur Brentford á lokakaflanum. West Ham er áfram tveimur stigum frá fallsæti eftir þetta tap, Tottenham er næsta lið fyrir neðan og á leik til góða gegn Aston Villa á morgun.
Brentford klifrar uppfyrir Brighton í baráttunni um Evrópudeildina og eru lærlingar Keith Andrews komnir með 51 stig eftir þennan sigur, einu meira heldur en Brighton sem tapaði á útivelli gegn Newcastle.
Newcastle hafði tapað fimm leikjum í röð fyrir heimaleikinn gegn Brighton og mættu lærlingar Eddie Howe grimmir til leiks. William Osula kom Newcastle yfir áður en Dan Burn tvöfaldaði forystuna.
Heimamenn hefðu getað skorað meira í fyrri hálfleiknum en tókst ekki og voru gestirnir frá Brighton beittari í síðari hálfleik. Jack Hinshelwood minnkaði muninn en nær komst gestaliðið ekki. Harvey Barnes innsiglaði sigur Newcastle í uppbótartíma, lokatölur 3-1.
Að lokum náði botnlið Wolves að gera jafntefli við nýliða Sunderland sem þurftu á sigri að halda í evrópubaráttunni.
Nordi Mukiele náði forystunni með skalla eftir hornspyrnu í fyrri hálfleik en liðsfélagi hans Dan Ballard fékk rautt spjald skömmu síðar fyrir að rífa í hárið á Tolu Arokodare.
Tíu leikmenn Sunderland voru lakari aðilinn á vellinum og tókst Úlfunum að jafna metin með skalla eftir hornspyrnu í síðari hálfleik.
Meira var þó ekki skorað svo lokatölur urðu 1-1. Úlfarnir eru þegar fallnir um deild en Sunderland er þremur stigum frá sæti í Evrópu þegar þrjár umferðir eru eftir af deildartímabilinu.
Brentford 3 - 0 West Ham
1-0 Konstantinos Mavropanos ('15 , sjálfsmark)
2-0 Igor Thiago ('54 , víti)
3-0 Mikkel Damsgaard ('82 )
Newcastle 3 - 1 Brighton
1-0 William Osula ('12 )
2-0 Dan Burn ('24 )
2-1 Jack Hinshelwood ('61 )
3-1 Harvey Barnes ('95)
Wolves 1 - 1 Sunderland
0-1 Nordi Mukiele ('17 )
1-1 Santiago Bueno ('54 )
Rautt spjald: Dan Ballard, Sunderland ('24)




